Þriðjudagur 5. maí kl. 08:30 - 11:30 á Hótel Grand
Vorráðstefna Corus: Mannauður í mótun
Framtíð gagna, gervigreindar og mannlegra tengsla
Taktu þátt í morgunviðburði þar sem við skoðum hvernig tækni, gögn og nýjar nálganir eru að móta mannauðsmál í dag.
Innsýn
Innsýn í hvernig leiðandi fyrirtæki nálgast mannauðsmál í dag.
Dæmi
Raunveruleg dæmi og reynslusögur úr íslensku atvinnulífi.
Hugmyndir
Hagnýtar hugmyndir og verkfæri sem þú getur nýtt strax í þínu starfi.
Tengslamyndun
Dýrmætt tækifæri til að hitta samstarfsfólk í faginu og efla tengslanetið.
Dagskrá
08:30 - 09:00
Morgunmatur
09:00 - 09:10
Dröfn Guðmundsdóttir
Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Corus, opnar ráðstefnuna.
09:10 - 09:30
Ægir Viktorsson
Ægir Viktorsson, Director of Business Support hjá Bláa Lóninu fer yfir áhugaverð verkefni sem eru í vinnslu hjá fyrirtækinu ásamt því að snerta á reynslu þeirra af Kjarna mannauðs- og launakerfi.
09:30 - 10:00
Brynjar Már Brynjólfsson
Allt er hægt, bara ef þú trúir á það. Brynjar fjallar um stafræna umbreytingu hjá Isavia og hvernig tengingar milli kerfa hafa einfaldað ferla og dregið úr handvirkri skráningu.
Þá mun hann einnig gefa innsýn í hvernig hann hefur nýtt gervigreindartólið Claude til að skapa snjallar og áhrifaríkar lausnir.
10:00 - 10:20
Eva Demireva & Guðrún Valdís Jónsdóttir
Hvernig tryggjum við að mannauðsgögn okkar komist ekki í rangar hendur?
Í heimi gervigreindar þar sem við erum sífellt að leita leiða til að einfalda okkur lífið með snjöllum lausnum aukast bæði tækifæri og áhættur.
Guðrún Valdís Jónsdóttir, forstöðumaður ráðgjafasviðs Syndis og Eva Demireva, mannauðsstjóri Syndis, fara yfir helstu áskoranir og hagnýtar leiðir til að vernda mannauðsgögn í síbreytilegu tækniumhverfi.
10:20 - 10:50
Hlé
Léttar veitingar og tengslamyndun
10:50 - 11:05
Halla Árnadóttir
Halla fer yfir spennandi vegferð Kjarna á næstu misserum. Hvað er á döfinni í vöruþróun og hvaða nýjungar munu einfalda vinnudaginn okkar.
11:05 - 11:20
Davíð Tómas Tómasson
Tökum púlsinn á fólkinu okkar. Hvernig getum við betur skilið líðan og upplifun starfsfólks? Davíð fjallar um mikilvægi reglulegra mælinga og hvernig innsýn í gögn getur hjálpað fyrirtækjum að bregðast fyrr við og styðja betur við starfsfólk sitt.
11:20 - 11:30
Ráðstefnulok
Skráning á Vorráðstefnu Corus
Framtíð gagna, gervigreindar og mannlegra tengsla.
Ný teymissía gerir sundurliðun sveigjanlegri
Corus: ágú. 25, 2026
2 min read
Myndrænt skipurit, matseðill dagsins og nýr öryggiseiginleiki í ráðningum í júní útgáfu Kjarna
Corus: ágú. 25, 2026
2 min read
Hvað kostar það sem enginn mælir?
Corus: ágú. 21, 2026
2 min read
Hvers vegna skipta gæði stjórnenda sköpum um starfsánægju?
Corus: jún. 4, 2026
2 min read
Hvernig tryggjum við að mannauðsgögnin okkar komist ekki í rangar hendur? Hollráð frá Syndis
Corus: maí 22, 2026
Ráðgjafarframboð 2026-2027
ágú. 28, 2026
Ný teymissía gerir sundurliðun sveigjanlegri
ágú. 25, 2026
Myndrænt skipurit, matseðill dagsins og nýr öryggiseiginleiki í ráðningum í júní útgáfu Kjarna
ágú. 25, 2026