Einfaldari launavinnsla með Kjarna

Launahluti Kjarna býður upp á hraðvirka og einfalda launavinnslu í notendavænu umhverfi ásamt öflugri skýrslugerð sem einfaldar alla yfirsýn yfir launamál fyrirtækisins.

Mikið er lagt upp úr því að létta skil á kjarasamningum til þriðja aðila og eru því helstu kjarakannanir á íslenska markaðnum innbyggðar í lausnina.

Samstæðan
Samstæðan

Auðvelt er að reikna laun stórra fyrirtækja og stofnana þar sem starfsemi er skipt upp á nokkrar kennitölur. Engin þörf á að skrá sig oftar en einu sinni.

Ánægjuleg upplifn
Sjálfstæð vinnubrögð

Launafulltrúar geta sjálfir séð um kjarasamningsbreytingar án aðstoðar þjónustuaðila. Breytingar má framkvæma með einni aðgerð og skrá fram í tímann.

Samþætting-icon
Fjölbreyttar tengingar

Beinar tengingar við helstu bókhaldskerfi og innbyggð skil til þriðja aðila einfaldar upplýsingagjöf og sparar tíma.

Öflugt greiningartól

Öflugt greiningartól

Með Kjarna hefur þú aðgang að ítarlegum greiningum og skýrslum sem gefa þér dýrmæta innsýn í launamál fyrirtækisins. Útbúðu sérsniðnar skýrslur fyrir jafnlaunavottun, fylgstu með launaþróun og greindu starfsmannaveltu.

Innbyggðar kjarakannanir auðvelda þér að taka þátt í mikilvægum markaðskönnunum og bera saman stöðu þíns fyrirtækis við markaðinn. Þetta gefur þér heildstæða yfirsýn yfir launakostnað og hjálpar þér að taka upplýstar ákvarðanir.

Einfaldari launavinnsla

Njóttu þess að vera með launamálin á hreinu með Kjarna, sem sameinar allar nauðsynlegar aðgerðir í launavinnslu í eitt skilvirkt kerfi.

Rafræn undirritun
Laun-mynd2

Hannað fyrir íslenskan markað

Launahluti Kjarna er sérstaklega hannaður til að mæta þörfum íslensks vinnumarkaðar. Kerfið uppfyllir allar kröfur íslenskra kjarasamninga og er reglulega uppfært í takt við breytingar á þeim. Með innbyggðum skilum fyrir helstu kjarakannanir og sjálfvirkum skilum á gögnum til opinberra aðila sparast mikill tími og fyrirhöfn.

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna
Mars útgáfa Kjarna er komin út, stútfull af nýjungum sem einfalda umsýslu og daglegt starf mannauðs- og launafólks....
Corus er fyrir fólkið!
Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og...
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að...