Kjarnavefur eflir stjórnendur

Kjarnavefur er heildstæð lausn sem umbreytir því hvernig stjórnendur starfa. Með öflugu vefviðmóti er hægt að stjórna öllum lykilþáttum mannauðsmála á einum stað - allt frá ráðningu til starfsloka.

Yfirsýn umsækjendur
Aukið sjálfstæði

Afgreiddu verkefni á augabragði án þess að þurfa að leita aðstoðar annarra deilda. Fáðu tafarlausan aðgang að öllum lykilupplýsingum sem þú þarft.

Verkferli
Einfaldað verkferli

Allar upplýsingar í einu notendavænu viðmóti. Samþykktu beiðnir, skoðaðu launagögn, sendu launabreytingu til samþykktar og fylgstu með viðveru án fyrirhafnar.

Samþætting-icon
Sveigjanleiki

Notaðu Kjarnavef hvar og hvenær sem er - í tölvu, spjaldtölvu eða síma.

Lykilupplýsingar stjórnenda

Kjarnavefur veitir stjórnendum heildstæða yfirsýn yfir allt sem tengist þeirra teymi. Hvort sem það er launasamþykkt, launaáætlun, ráðningar, frammistöðumat eða samþykkt beiðna - allt er aðgengilegt í notendavænu viðmóti. Stjórnendur geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki lengur að leita til annarra deilda eftir upplýsingum.

Kjarnavefur-mynd

Heildstæð lausn fyrir stjórnendur

Örugg móttaka
Þróun starfsfólks

Haltu utan um frammistöðumat, starfsþróunarsamtöl og fræðslu á einum stað. Skráðu réttindi og hæfni starfsfólks, haltu utan um námskeið og fylgstu með þróun teymisins á skýran og skipulagðan hátt.

Rafræn undirritun
Frá ráðningu til starfsloka

Með Kjarnavef er ráðningarferlið skilvirkt og faglegt. Þú getur stofnað og birt starfsauglýsingar, unnið úr umsóknum og óskað eftir viðbótargögnum á einum stað. Þegar ákvörðun er tekin er einstaklingur stofnaður beint í mannauðs- og launahluta Kjarna og samningur sendur til rafrænnar undirritunar.

Sjálfvirk greining
Tryggðu að ekkert gleymist

Gátlistavirkni Kjarna tryggir að mikilvæg ferli séu framkvæmd af nákvæmni. Allir hlutaðeigandi aðilar hafa aðgang að sínum verkefnum, hvort sem um er að ræða móttöku nýliða eða starfslok. Með skýru verklagi og rauntíma yfirsýn er tryggt að ekkert gleymist í mikilvægum ferlum.

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Corus stækkar teymið og styrkir framtíðarsýn Kjarna og Moodup
Corus vill gefa stjórnendum betri innsýn í mannauðsmál. Corus hefur á undanförnum árum byggt upp tvær lykillausnir...
Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“
Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í...
Frá Yatzy til Kjarna - Ævintýralegur ferill Torfa
Guðmundur Torfi Gíslason ætlaði upphaflega að læra viðskiptafræði en féll fyrir forritun eftir fyrsta tímann. Síðan þá...