Færri fyrirspurnir, aukinn tímasparnaður
Veittu starfsfólki beint aðgengi að eigin upplýsingum og minnkaðu fyrirspurnir til mannauðs- og launadeilda.
Minni handavinna
Allar beiðnir fara sjálfkrafa til hlutaðeigandi aðila og kerfið sér um eftirfylgni - engin þörf á óþarfa tölvupóstum.
Aukin starfsánægja
Sjálfsafgreiðsla og hraðari afgreiðsla beiðna bætir upplifun starfsfólks. Starfsfólk hefur gott yfirlit yfir allar sínar grunnupplýsingar.
Starfsmannavefur Kjarna
Öflugt vefviðmót sem veitir heildstæða yfirsýn. Með starfsmannavefnum hefur starfsfólk góða yfirsýn yfir teymið sitt, getur skoðað ítarlega allar upplýsingar og skjöl, og hefur heildaryfirlit yfir allar sínar beiðnir og stöðu þeirra.
Snjallforrit Kjarna
Handhæg leið til að sinna daglegum málum hvar og hvenær sem er. Snjallforritið er hannað með áherslu á einfaldar og snöggar aðgerðir eins og viðveruskráningar, umsóknir um orlof og styrki, eða skráningar í mötuneyti. Tilvalið fyrir þau sem eru á ferðinni og vilja hafa hlutina við höndina í símanum.
Eiginleikar
Allt sem þú þarft á einum stað
Kynntu þér þá eiginleika sem eru í boði á starfsmannavefnum og í snjallforriti Kjarna.
Þægindi við skipulag orlofs
Starfsfólk getur séð yfirlit yfir orlofsstöðu sína og sent inn orlofsbeiðni til samþykktar. Einnig getur starfsfólk séð yfirlit yfir orlofsóskir samstarfsfólks síns til að sjá hvernig þeirra eigin orlofsóskir passa við orlofsóskir annarra aðila í teyminu.
Styrkir
Starfsfólk getur séð yfirlit yfir þá styrki sem því stendur til boða og stöðu þeirra styrkja. Einnig getur starfsfólk sent inn styrkumsóknir, t.d. fyrir líkamsræktar- eða samgöngustyrk.
Viðburðir og námskeið
Hægt er að sjá yfirlit yfir þá viðburði og námskeið sem eru í boði á vegum fyrirtækisins og hægt er að skrá sig á þá með einföldum hætti.
Samstarfsfólkið
Starfsfólk hefur aðgengi að grunnupplýsingum um samstarfsfólk sitt. Einfalt er að leita eftir samstarfsfólki og aðilum í sömu stöðu/deild. Einnig er gaman að geta séð yfirlit yfir afmælisbörn dagsins svo hægt sé að kasta kveðju á þau.
Öll skjöl við höndina
Starfsfólk getur haft aðgang að launseðlum og launamiðum ásamt ýmsum öðrum skjölum eins og ráðningarsamningum o.fl. Einnig getur starfsfólk hlaðið inn viðbótarskjölum ef þess gerist þörf.
Tímaskráning
Ef starfsfólk þarf að skrá tímana sína getur það gert á einfaldan hátt í gegnum starfsmannavefinn eða snjallforrit Kjarna.
Mötuneyti
Starfsfólk getur séð yfirlit yfir skráningar sínar í mötuneyti og skráð sig fyrir fram í mat. Þetta auðveldar skipulag og minnkar matarsóun.
Viltu vita meira?
Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.
Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.
Við kynnum CORUS til leiks!
des. 29, 2025
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?
okt. 6, 2025