Betri stjórn á ferðakostnaði með dagpeningum Kjarna

Með dagpeningahluta Kjarna er einfalt að halda utan um kostnað sem hlýst af ferðum starfsfólks, bæði innanlands og utan.

Starfsfólk getur með örfáum smellum sent inn beiðnir í gegnum starfsmannavef eða snjallforrit Kjarna. Stjórnendur fá skýra yfirsýn yfir allar beiðnir sem gerir þeim kleift að afgreiða þær fljótt og örugglega.

Tvíverknaður
Enginn tvíverknaður

 

Sjálfvirkt ferli léttir störf með því að reikna réttar upphæðir og færa samþykktar beiðnir beint í útborgun.

Verkferli
Fljótleg úrvinnsla

Starfsfólk sendir inn beiðnir með örfáum smellum og stjórnendur geta afgreitt þær á augabragði. Engin þörf á tölvupóstum eða eftirfylgni.

Kjarnavefur-mynd

Upplýsingar á réttum stöðum

Allar upplýsingar flæða sjálfkrafa á réttan stað í kerfinu. Samþykktar beiðnir er hægt að flytja beint í launakeyrslu og bókhald, sem tryggir nákvæmni og rekjanleika. Kerfið sendir sjálfkrafa tilkynningar til allra hlutaðeigandi aðila og heldur þannig utan um allt ferlið frá upphafi til enda.

Fjölbreyttar greiðsluleiðir

Dagpeningahluti Kjarna aðlagast þínum þörfum með fjölbreyttum greiðsluleiðum. Þú velur þá leið sem hentar þínu fyrirtæki best.

Sjálfvirk greining
Beint með launum

Greiddu dagpeninga á einfaldan máta með næstu launakeyrslu. Sjálfvirk bókun í launakerfi tryggir nákvæmni og sparar tíma.

Rafræn undirritun
Fyrirframgreiðsla

Bjóddu upp á fyrirframgreiðslu dagpeninga beint til lánadrottins sem gerð eru upp í næstu launakeyrslu.

Örugg móttaka
Sveigjanleg tenging

Nýttu þér öflugar vefþjónustur til að tengja við önnur kerfi og fáðu sjálfvirka samþættingu við bókhaldskerfið.

Skýr yfirsýn fyrir alla aðila

Starfsfólk hefur alltaf skýra yfirsýn yfir stöðu sinna beiðna og getur fylgst með framvindu í rauntíma á starfsmannavef eða í snjallforriti Kjarna. Stjórnendur fá heildarmynd af ferðakostnaði sinna deilda og geta greint kostnað eftir verkefnum, tímabilum og öðrum forsendum. Hægt er að lesa inn gögn úr öðrum kerfum sem tryggir að engar upplýsingar týnist.

Ráðningar-mynd

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna
Mars útgáfa Kjarna er komin út, stútfull af nýjungum sem einfalda umsýslu og daglegt starf mannauðs- og launafólks....
Corus er fyrir fólkið!
Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og...
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að...