Frá auglýsingu til undirritunar

Ráðningarhluti Kjarna einfaldar allt ferlið frá auglýsingu til ráðningar. Sjálfvirknivæðing ferla og góð yfirsýn fækkar skrefum og gerir ferlið þægilegt fyrir bæði umsækjendur og ráðningarfulltrúa.

Ráðningarferli
Einfaldara ráðningarferli

Straumlínulagað ferli sparar tíma og fyrirhöfn. Settu upp auglýsingar, taktu á móti umsóknum og afgreiddu ráðningar á einum stað. Allar upplýsingar flæða beint í gegnum kerfið.

Yfirsýn umsækjendur
Betri yfirsýn yfir umsækjendur

Öflugt yfirlit veitir skýra mynd af öllum umsækjendum. Gefðu einkunnir, skráðu athugasemdir og haltu utan um öll samskipti á einum stað.

Ánægjuleg upplifn
Ánægjuleg upplifun umsækjenda

Notendavænt umsóknarferli sem skapar jákvæða ímynd fyrirtækisins.

Heildstætt ráðningarferli

Ráðningarferlið verður skilvirkara með Kjarna. Byrjaðu á að setja upp auglýsingu með stöðluðum spurningum eða sérsniðnum skimunarspurningum sem auðveldar alla úrvinnslu umsókna.

Ráðningar-mynd
Ráðningar2-mynd

Fagleg úrvinnsla umsókna

Ráðningarfulltrúar fá skýra yfirsýn yfir allar umsóknir í notendavænu viðmóti. Kerfið heldur utan um öll samskipti við umsækjendur, hvort sem það er að senda höfnunarbréf, óska eftir viðbótargögnum eða boða í viðtal.

Gefðu umsækjendum einkunn út frá einstaklingnum sjálfum eða starfinu sem sótt er um. Þannig er auðvelt að hafa yfirsýn yfir umsækjendur sem gætu jafnvel hentað betur í aðrar stöður innan fyrirtækisins.

Örugg og fljótleg ráðning

Þegar rétti umsækjandinn hefur verið valinn tekur við einfalt og sjálfvirkt ráðningarferli sem tryggir nákvæmni og sparar tíma.

Sjálfvirk greining
Sjálfvirk greining

Kerfið greinir sjálfkrafa hvort um sé að ráða innanhússráðningu, endurráðningu eða nýjan starfsmann og aðlagar ferlið að því.

Rafræn undirritun
Rafræn undirritun

Ráðningarsamningur er undirritaður rafrænt og allar upplýsingar færast sjálfkrafa yfir í mannauðshluta Kjarna án nokkurrar handavinnu - enginn tvíverknaður.

Örugg móttaka
Örugg móttaka

Tengdu gátlista strax við ráðningu sem tryggir að ekkert gleymist í móttökuferlinu. Allir hlutaðeigandi fá tilkynningu um sín verkefni, hvort sem það er aðgangur að kerfum, úthlutun á búnaði eða kynning á vinnustað.

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Corus stækkar teymið og styrkir framtíðarsýn Kjarna og Moodup
Corus vill gefa stjórnendum betri innsýn í mannauðsmál. Corus hefur á undanförnum árum byggt upp tvær lykillausnir...
Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“
Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í...
Frá Yatzy til Kjarna - Ævintýralegur ferill Torfa
Guðmundur Torfi Gíslason ætlaði upphaflega að læra viðskiptafræði en féll fyrir forritun eftir fyrsta tímann. Síðan þá...