Aukin upplýsingagjöf með mannauðshluta Kjarna

Mannauðshluti Kjarna veitir þér fullkomna yfirsýn og stjórn yfir mannauðsmál fyrirtækisins. Sparaðu tíma og fyrirhöfn með því að hafa allar upplýsingar á einum stað, frá ráðningu til starfsloka.

Tímasparnaður
Tímasparnaður

Safnaðu öllum starfsmannaupplýsingum á einn stað og útilokaðu tvíverknað.

Yfirsýn umsækjendur
Eflum stjórnendur

Auðvelt aðgengi gerir stjórnendum kleift að nálgast upplýsingar sjálfir - sem þýðir færri fyrirspurnir til mannauðs- og launadeildar.

Öruggt aðgengi
Öruggt aðgengi

Stjórnaðu hver hefur aðgang að hverju. Veittu stjórnendum yfirsýn yfir sitt teymi á meðan mannauðsdeild hefur heildarsýn. 

Heildaryfirsýn sem styrkir ákvarðanatöku

Mannauðshluti Kjarna veitir þér heildaryfirlit yfir allar starfsmannaupplýsingar á einum stað. Starfsmannaspjöld innihalda allar lykilupplýsingar um starfsfólk líkt og stöðu, þekkingu, reynslu og næsta yfirmann/stjórnanda. Öflug leitarvél gerir þér kleift að finna starfsfólk með sérstaka hæfni, menntun og reynslu á augabragði.

Mannauður

Frá ráðningu til starfsloka

 
Öflug tölfræði og skýrslugerð

Fáðu skýra sýn yfir lykilmælikvarða eins og starfsmannaveltu, starfslok og stórafmæli. Skoðaðu töflur fyrir ákveðin tímabil og skipulagseiningar og taktu upplýstar ákvarðanir byggðar á gögnum. 

Ráðningar frá A-Ö

Ráðningar verða straumlínulagaðar með Kjarna. Frá því að auglýsing er stofnuð þar til ráðningarsamningur er undirritaður færast allar upplýsingar sjálfkrafa á milli skrefa. Veldu úr fjölbreyttum sniðmátum sem henta mismunandi ráðningum. 

Sérsniðið að þínum þörfum

Stjórnendur geta fengið sérsniðinn aðgang að upplýsingum sinnar deildar og afgreitt verkefni án þess að þurfa að leita aðstoðar annarra deilda. Þannig hafa allir yfirsýn yfir sín mál líkt og orlofsstöðu, starfsmannaveltu og aðrar lykilupplýsingar.

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Corus stækkar teymið og styrkir framtíðarsýn Kjarna og Moodup
Corus vill gefa stjórnendum betri innsýn í mannauðsmál. Corus hefur á undanförnum árum byggt upp tvær lykillausnir...
Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“
Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í...
Frá Yatzy til Kjarna - Ævintýralegur ferill Torfa
Guðmundur Torfi Gíslason ætlaði upphaflega að læra viðskiptafræði en féll fyrir forritun eftir fyrsta tímann. Síðan þá...