Verðskrá
Eitt verð, engin falin gjöld
Grunnáskrift
49.000 kr.
á mánuði með 50 starfsmenn innifalda, 290 kr. fyrir hvern umfram það
Allt sem þú þarft til að mæla og auka starfsánægju:
- Púlsmælingar
- Sérsniðnar spurningar
- Afhendingar í SMSi og tölvupósti
- Gervigreind (MoodupGPT)
- Þjónusta í tölvupósti
Heildaráskrift
69.000 kr.
á mánuði með 100 starfsmenn innifalda, 390 kr. fyrir hvern umfram það
Allt í grunnáskrift, auk eftirfarandi:
- Sérsniðnar kannanir
- Stjórnendamöt
- Fullkomnar aðgangsstýringar
- Samtöl um endurgjöf
- Útkeyrsla gagna í Excel
- Einskráning (e. Single Sign-On/SSO)
- Forgangsþjónusta í tölvupósti
Sérsniðin áskrift
Subtitle
Tölum saman
Mælt með fyrir vinnustaði með yfir 500 starfsmenn
Allt í heildaráskrift, auk eftirfarandi:
- Tenging við mannauðskerfi
- Eigið lén + netfang í mælingum
- Útkeyrsla gagna með vefþjónustu
- Ekkert hámark á fjölda starfsmanna og/eða stjórnenda
- Uppitíma- og öryggistryggingar
- Forgangsþjónusta í tölvupósti, síma og í gegnum fjarfundi
Spurt og svarað
Algengar spurningar um Moodup
-
Hvernig virkar verðskráin?
Þú greiðir fast mánaðargjald, sem fer eftir fjölda starfsmanna og áskriftarleið. Virðisaukaskattur bætist ofan á. Þú getur greitt fyrir Moodup á ársgrundvelli gegn 10% afslætti.
-
Hvernig virkar prufuaðgangur?
Þú getur stofnað prufuaðgang án greiðslu. Aðgangurinn er ótímabundinn og þú þarft ekki að slá inn greiðsluupplýsingar. Notaðu aðganginn til að kynna þér stjórnborðið, forskoða kannanir, bjóða öðrum stjórnendum og skrá starfsfólk í mælingu.
Þú getur ekki sent út mælingar á prufuaðgangi. Þú þarft að virkja greidda áskriftarleið til að senda út fyrstu mælinguna.
-
Er uppsetningargjald eða önnur gjöld?
Nei. Við rukkum ekkert uppsetningargjald, útsendingargjald fyrir tölvupósta/SMS-skilaboð, né önnur falin gjöld.
-
Get ég sagt upp áskriftinni hvenær sem er?
Já, þú getur sagt upp hvenær sem er. Aðgangurinn helst þá virkur þar til samningstímabilið klárast. Grunn- og heildaráskriftir eru án uppsagnarfrests, þá lýkur samningnum við lok yfirstandandi greiðslutímabils. Sérsniðnar áskriftir eru yfirleitt með uppsagnarfresti, sem er tilgreindur í undirrituðum þjónustu- og vinnslusamningi.
-
Get ég breytt áskriftinni minni síðar meir?
Já. Þú getur skipt um áskriftarleið og breytt fjölda starfsmanna hvenær sem er. Nýja áskriftarupphæðin verður þá innheimt á næsta samningstímabili.
-
Uppfyllir Moodup kröfur um persónuvernd?
Já. Við uppfyllum persónuverndarlöggjöf Íslands og Evrópusambandsins. Allar upplýsingar eru geymdar innan ESB og eru dulkóðaðar bæði við flutning og í hvíld. Hér má nálgast nánari upplýsingar varðandi gagnaöryggi og persónuvernd.
-
Bjóðið þið upp á aðstoð við uppsetningu og almenna aðstoð?
Já. Aðstoð og þjónusta í tölvupósti er innifalin í öllum áskriftum. Við getum einnig veitt viðbótarþjónustu, svo sem þjálfun eða fræðslu fyrir starfsmenn og/eða stjórnendur.
Við kynnum CORUS til leiks!
des. 29, 2025
Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt...
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?
okt. 6, 2025
Hjá flestum fyrirtækjum búa mannauðs- og launakerfi yfir mikilvægum upplýsingum um starfsmannahópinn. Á sama tíma gefa...