Aukin starfsánægja með sjálfsafgreiðslu

Veittu starfsfólki aðgang að eigin upplýsingum með starfsmannavef eða snjallforriti Kjarna. Með aukinni sjálfsafgreiðslu minnkar álag á mannauðs- og launadeildir sem geta þá einbeitt sér að virðisskapandi verkefnum.

Tímasparnaður
Færri fyrirspurnir, aukinn tímasparnaður

Veittu starfsfólki beint aðgengi að eigin upplýsingum og minnkaðu fyrirspurnir til mannauðs- og launadeilda.

Ánægjuleg upplifn
Minni handavinna

Allar beiðnir fara sjálfkrafa til hlutaðeigandi aðila og kerfið sér um eftirfylgni - engin þörf á óþarfa tölvupóstum.

Yfirsýn umsækjendur
Aukin starfsánægja

Sjálfsafgreiðsla og hraðari afgreiðsla beiðna bætir upplifun starfsfólks. Starfsfólk hefur gott yfirlit yfir allar sínar grunnupplýsingar.

Starfsmannavefur Kjarna

Starfsmannavefur Kjarna

Öflugt vefviðmót sem veitir heildstæða yfirsýn. Með starfsmannavefnum hefur starfsfólk góða yfirsýn yfir teymið sitt, getur skoðað ítarlega allar upplýsingar og skjöll, og hefur heildaryfirlit yfir allar sínar beiðnir og stöðu þeirra.

Snjallforrit Kjarna

Handhæg leið til að sinna daglegum málum hvar og hvenær sem er. Snjallforritið er hannað með áherslu á einfaldar og snöggar aðgerðir eins og viðveruskráningar, umsóknir um orlof og styrki, eða skráningar í mötuneyti. Tilvalið fyrir þau sem eru á ferðinni og vilja hafa hlutina við höndina í símanum.

Snjallforrit Kjarn

Allt sem þú þarft á einum stað

Kynntu þér þá eiginleika sem eru í boði á starfsmannavefnum og í snjallforriti Kjarna.

Mannauður

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna
Mars útgáfa Kjarna er komin út, stútfull af nýjungum sem einfalda umsýslu og daglegt starf mannauðs- og launafólks....
Corus er fyrir fólkið!
Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og...
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að...