Hagkvæmur mötuneytisrekstur

Mötuneytislausn Kjarna einfaldar alla umsýslu í kringum mötuneytisrekstur. Starfsfólk getur skráð sig í mat á einfaldan hátt og allar færslur berast sjálfkrafa í launakerfið. Með nákvæmri tölfræði er auðvelt að skipuleggja innkaup, draga úr matarsóun og halda utan um allar færslur.

Mötuneytislausnin býður upp á stakar máltíðir, mataráskrift og kaup á ákveðnum vörutegundum.

Matarsóun
Minni matarsóun

Starfsfólk getur skráð sig fyrir fram í mat sem auðveldar skipulag og tryggir magn.

Verkferli
Enginn tvíverknaður

Allar skráningar flæða sjálfkrafa yfir í launahluta Kjarna. Engin handavinna og enginn tvíverknaður.

Tölfræði1
Öflug tölfræði

Fáðu nákvæma yfirsýn yfir sölutölur, vinsælustu vörurnar og þróun á milli tímabila. Taktu upplýstar ákvarðanir byggðar á rauntímagögnum.

Ráðningar2-mynd

Nákvæm tölfræði og greining

Tölfræðihluti mötuneytislausnarinnar veitir ítarlega innsýn í reksturinn. Fylgstu með söluhæstu vörunum, greindu þróun milli tímabila og berðu saman sölu milli verslana og mötuneyta. Með nákvæmri tölfræði er auðvelt að greina vinsælustu vörurnar, hvar mesta salan er og hvernig kauphegðun breytist yfir tíma.

Fjölbreyttar lausnir fyrir ólíkar þarfir

Örugg móttaka
Sveigjanleg verðlagning

Settu upp mismunandi verð eftir tímum dags og Kiosk-kerfið uppfærir verðið sjálfkrafa og tryggir rétta verðlagningu samkvæmt tímasetningu.

Rafræn undirritun
Öflug aðgangsstýring

Veittu ytri aðilum öruggan aðgang að kerfinu þar sem þeir geta stofnað og óvirkjað sitt starfsfólk og séð yfirlit yfir færslur á einfaldan hátt.

Sjálfvirk greining
Fjölbreyttar greiðsluleiðir

Bjóddu upp á stakar máltíðir, mataráskrift eða vörukaup í verslun. Kerfið heldur utan um allar færslur og sendir þær yfir í launakerfið.

Þægilegt aðgengi fyrir starfsfólk

Starfsfólk getur á einfaldan hátt skráð sig í mat í gegnum snjallforrit Kjarna. Með fyrirframskráningu getur starfsfólk valið hvaða daga þau ætla að vera í mat, sem auðveldar skipulag og minnkar matarsóun.

Allar mötuneytis- og verslunarfærslur eru aðgengilegar á starfsmannavefnum sem gefur góða yfirsýn yfir frádrætti á launaseðlum - engin þörf á að leita til mannauðs- og launadeildar.

Ráðningar-mynd

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Hvers vegna skipta gæði stjórnenda sköpum um starfsánægju?
Hvað ræður mestu um það hvort starfsfólk upplifi helgun, starfsánægju og raunverulega tengingu við vinnustaðinn sinn? Á...
Hvernig tryggjum við að mannauðsgögnin okkar komist ekki í rangar hendur? Hollráð frá Syndis
Gervigreindin er komin til að vera og flest fyrirtæki eru farin að nýta hana daglega. En með nýjum tækifærum fylgja...
Allt er hægt bara ef þú trúir á það: Hvernig Isavia nýtir gögn og gervigreind í mannauðsmálum
"Það er nánast allt hægt í dag." Þannig hóf Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðssérfræðingur Isavia, erindi sitt á...