Góð upplifun frá fyrsta degi með gátlistum Kjarna

Láttu ekkert gleymast í mikilvægum ferlum. Gátlistar Kjarna einfalda þér að halda utan um allt frá móttöku nýliða til starfsloka á einum stað.

Með gátlistum Kjarna getur þú auðveldlega haldið utan um öll verkefni sem þarf að klára, jafnvel þvert á deildir. Kerfið sendir sjálfvirkar áminningar og veitir skýra stöðuyfirsýn sem tryggir að öll nauðsynleg skref séu tekin á réttum tíma.

Upplýstar ákvarðanir
Fullkomin yfirsýn

Fylgstu með verkefnum og framvindu þeirra á einum stað.

 

Time
Tímasparnaður

Segðu skilið við óþarfa símtöl og tölvupósta. Sjálfvirkar tilkynningar tryggja að allir viti nákvæmlega hvað þarf að gera og hvenær.

Sjálfstæði starfsfólks
Aukin starfsánægja

Umsjón með verkferlum tryggir að nýliðar fái allt sem þeir þurfa á réttum tíma. Fagleg móttaka stuðlar að jákvæðri upplifun frá fyrsta degi.

Tryggðu að ekkert gleymist

Gátlistar Kjarna eru öflug lausn sem einfaldar utanumhald verkefna, hvort sem um ræðir móttöku nýliða, sumarstarfsfólks eða starfslok starfsmanna.

Þegar nýtt starfsfólk er stofnað í Kjarna getur mannauðsdeild tengt viðeigandi gátlista við hvern starfsmann. Hlutaðeigandi aðilar fá tilkynningu um sín verkefni og geta merkt við þau þegar þeim er lokið, sem tryggir að ekkert gleymist í ferlinu.

Ráðningar
Verkefnastjórnun

Skipulagðir verkferlar skila betri árangri

Gátlistar Kjarna bjóða upp á skilvirka leið til að halda utan um þau verkefni sem þarf að framkvæma.

Sérsniðin gátlistasniðmát

Aðlagaðu gátlista að þínum þörfum svo þeir henti fyrir ólík ferli, allt frá ráðningu til starfsloka. Búðu til eigin sniðmát fyrir mismunandi deildir eða ólíkar tegundir verkefna.

Sjálfvirkar áminningar

Settu tímamörk á gátlista og fáðu sjálfvirkar áminningar áður en öllum verkefnum gátlistans þarf að vera lokið.

Heildaryfirsýn

Fylgstu með framvindu margra lista í einu. Fullkomin yfirsýn yfir stöðu verkefna hentar sérstaklega vel þegar stór hópur hefur störf í einu, eins og við móttöku sumarstarfsfólks eða verkefnastjórnun þvert á deildir.

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að...
Við kynnum CORUS til leiks!
Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt...
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?
Hjá flestum fyrirtækjum búa mannauðs- og launakerfi yfir mikilvægum upplýsingum um starfsmannahópinn. Á sama tíma gefa...