Starfstækifæri
Mótaðu framtíð vinnustaða með okkur
Vilt þú verða hluti af öflugu teymi þar sem tækni og menning mætast?
Hjá Corus færð þú tækifæri til að einfalda flókna ferla og hafa áhrif á vinnudag fólks um allt land. Þú verður hluti af framsæknu og hvetjandi umhverfi þar sem nýsköpun, traust og vellíðan eru í fyrirrúmi.
Ef þú vilt móta framtíð vinnustaða með okkur, þar sem tæknin þjónar fólkinu, þá hlökkum við til að heyra í þér.
Markaðs- og sölusérfræðingur
Við leitum að metnaðarfullum markaðs- og sölusérfræðingi sem mun gegna lykilhlutverki í þróun og vexti Corus.
Í þessu hlutverki munt þú bæði þróa og framkvæma markaðsstefnu Corus og taka þátt í sölu á lausnum Corus.
Umsóknarfrestur: 05.05.2026