Mannauðsgögn sem segja sögu: Heildstæð nálgun með Kjarna og Moodup
Geta gögn hjálpað til við að skilja raunverulegar þarfir starfsfólks? Að nýta gögn úr bæði Kjarna og Moodup opnar á ný tækifæri. Hér skoðum við...
Hvað ræður mestu um það hvort starfsfólk upplifi helgun, starfsánægju og raunverulega tengingu við vinnustaðinn sinn?
Á vorráðstefnu Corus fjallaði Davíð Tómas Tómasson um það sem hann kallar "helgunarkreppuna" á vinnumarkaði og hvers vegna næsti yfirmaður er mikilvægasta breytan í upplifun starfsfólks í starfi.
Í erindinu Stjórnandinn er lykillinn fór Davíð yfir hvernig fyrirtæki geta unnið markvissar að stjórnendaþróun með reglubundinni endurgjöf, mælingum og markþjálfun.
Davíð hóf erindið á því að fjalla um stöðuna á vinnumarkaði í dag. Þrátt fyrir aukna áherslu fyrirtækja á menningu, fríðindi og vellíðan síðustu ár sýna rannsóknir að stór hluti starfsfólks upplifir ekki sterka tengingu eða helgun gagnvart vinnunni sinni.
Samkvæmt nýrri rannsókn frá Gallup, sem Davíð vísaði í, upplifa aðeins um 20% starfsfólks á heimsvísu sig ástríðufullt (e. engaged) gagnvart starfi sínu. Á sama tíma er rúmlega 60% starfsfólks óvirkt (e. unengaged) í starfi.
Þetta hefur ekki aðeins áhrif á líðan starfsfólks heldur einnig framleiðni, árangur og þróun fyrirtækja.
Spurningin verður því: hvað er raunverulega hægt að gera til að virkja starfsfólk betur?
Mörg fyrirtæki hafa reynt að svara þessari áskorun með auknum fríðindum, viðburðum eða ýmiss konar menningarverkefnum. Slík verkefni geta vissulega skipt máli, en samkvæmt rannsóknum er stærsti áhrifavaldurinn í helgun starfsfólks næsti yfirmaður.
Næsti stjórnandi er sá snertipunktur sem starfsfólk á oftast í samskiptum við. Hann hefur áhrif á daglegt vinnuálag, endurgjöf, sjálfstæði, traust, væntingar og viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Þess vegna upplifir starfsfólk menningu vinnustaðarins ekki aðeins í gegnum stefnu eða gildi á blaði heldur fyrst og fremst í gegnum sinn næsta stjórnanda.
.jpg?width=1166&height=696&name=Vorr%C3%A1%C3%B0stefna%20Corus%20ma%C3%AD%2026%20(9).jpg)
Einn mikilvægasti punktur erindisins var að góð stjórnun er ekki eingöngu meðfæddur hæfileiki heldur byggir hún á mælanlegri hegðun sem er hægt að þjálfa og þróa með sér.
Davíð benti á fimm hegðunarmynstur sem einkenna áhrifaríka stjórnendur:
Davíð benti einnig á ákveðið misræmi. Stjórnendur bera mikla ábyrgð á upplifun starfsfólks en fá sjálfir oft litla endurgjöf á eigin frammistöðu.
Þar getur skipulagt stjórnendamat skipt miklu máli. Með reglulegum mælingum, 360° endurgjöf og skýrum mælikvörðum verður hægt að gera áhrif stjórnenda sýnilegri, ekki til að refsa, heldur til að styðja við þróun og bætta stjórnun.
Þegar stjórnendur fá betri innsýn í eigin áhrif geta þeir líka brugðist markvissar við og þróað þá hegðun sem hefur mest áhrif á teymið sitt.
Davíð lagði áherslu á að mælingar einar og sér breyti litlu ef ekkert er gert við niðurstöðurnar. Starfsánægjumælingar, púlsmælingar og stjórnendamat skapa mikilvæga innsýn, en raunverulegur árangur verður fyrst til þegar fyrirtæki nota gögn til að styðja við markvissa stjórnendaþróun.
Þar kemur markþjálfun stjórnenda sterkt inn. Mat og mælingar sýna stöðuna, en markþjálfun hjálpar stjórnendum að breyta hegðun, byggja upp betri venjur og styrkja tengslin við starfsfólk sitt.
Í erindinu tengdi Davíð þetta við þá vegferð sem Moodup og Corus eru á. Moodup hefur frá upphafi hjálpað fyrirtækjum að mæla starfsánægju og helgun, en næsta skref er að hjálpa fyrirtækjum að vinna markvisst með niðurstöðurnar.
Með Corus sameinast hugbúnaður, gögn og ráðgjöf í heildstæðari nálgun. Markmiðið er ekki aðeins að mæla stöðuna heldur einnig að styðja fyrirtæki við að bregðast við niðurstöðum, þróa stjórnendur og skapa betri upplifun fyrir starfsfólk.
Geta gögn hjálpað til við að skilja raunverulegar þarfir starfsfólks? Að nýta gögn úr bæði Kjarna og Moodup opnar á ný tækifæri. Hér skoðum við...
Kjarni sameinar allan starfsferilinn í eitt kerfi. Hvort sem þú ert að ráða nýtt fólk, greiða laun, fylgja eftir hæfnismarkmiðum eða ganga frá...
Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar mannauðslausnir eru í eigu Skyggnis...