Áreiðanleg og sjálfvirk vinnsla sjómannalauna með Fiska
Fiska er kerfishluti innan Kjarna þar sem haldið er utan um allar lykilforsendur útreiknings fyrir sjómannalaun, þar á meðal skip, skiptaprósentur, kaupliði og önnur skilyrði sem skipta máli við útreikning hlutar.
Fyrir útgerðir þýðir þetta að hægt er að halda utan um alla launavinnslu á einum stað, hvort sem fólk starfar á sjó eða landi.
Sjálfvirkur útreikningur
Kerfið reiknar aflahlut út frá aflaverðmæti og öðrum forsendum og skilar niðurstöðum beint í launakerfi Kjarna til endanlegrar launavinnslu.
Samþætting við sölukerfi
Með vefþjónustum er hægt að sækja aflaverðmæti sjálfvirkt úr öðrum kerfum, sem lágmarkar handavinnu og eykur nákvæmni.
Gögnin flæða á réttan stað
Aflaverðmæti sem berst frá sölukerfum flæðir sjálfkrafa inn í útreikninginn og niðurstöður úr uppgjöri skila sér áfram í launavinnslu og skýrslugerð - það tryggir nákvæmni og rekjanleika frá löndun til útborgunar.
Sniðið að þörfum útgerða
Fiska styður við flókinn útreikning sjómannalauna
Viltu vita meira?
Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.
Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.
Ný teymissía gerir sundurliðun sveigjanlegri
ágú. 25, 2026
Myndrænt skipurit, matseðill dagsins og nýr öryggiseiginleiki í ráðningum í júní útgáfu Kjarna
ágú. 25, 2026