Allt fyrir fólkið

Fullkomin stjórn og yfirlit
yfir allan mannauðinn.

DHL Isavia Kvika Landsvirkjun Nova Ölgerðin Orkubú Vestfjarða Pósturinn Reykjanesbær SÁÁ Sjóvá Slippurinn TDK Arion banki Askja

Kjarni mannauðs- og launakerfi

Kjarni heldur utan um allar mannauðs- og launaupplýsingar á einum stað. Með sjálfsafgreiðslu stjórnenda og sjálfvirkni minnkar álag á mannauðs- og launadeildir, tími sparast, yfirsýn eykst og ákvarðanir verða markvissari.

Hlustaðu á fólkið þitt með Moodup

Reglulegar púlsmælingar gefa stjórnendum heildstæða mynd af líðan starfsfólks og gera þeim kleift að auka starfsánægju á vinnustaðnum. 
Með Moodup verður endurgjöf hluti af daglegu starfi og umbætur byggjast á raunverulegum gögnum frekar en tilfinningu.

Moodup Desktop1

Fersk launagögn með Rúnu launavakt

Rúna færir þér nýjustu launagögn á markaði á aðgengilegan og skiljanlegan hátt. Lausnin sýnir stöðu þíns fyrirtækis miðað við markaðinn og styður þannig við sanngjarnar og gagnadrifnar launaákvarðanir. Með ferskum gögnum í rauntíma færð þú öryggi inn í launasamtöl.

Umsagnir viðskiptavina

Við vinnum með fjöldanum öllum af ólíkum fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum.

Allar uppflettingar, launasamþykktir og skýrslugerðir eru sérlega þægilegar. Allt viðmót er mjög notendavænt og hjálpin sérlega auðlesin og gagnleg.
Bergþóra Hrund Ólafsdóttir
Bergþóra Hrund Ólafsdóttir
Chief HR Officer, LS Retail
Við höfum greint tvo ferla sem hafa skilað okkur 22,6 milljónum eða 2 stöðugildum á ári bara í krónum og aurum, grjóthart, í hagræðingu. Við erum bara rétt að byrja.
Kristín Sigrún Guðmundsdóttir
Kristín Sigrún Guðmundsdóttir,
Mannauðsstjóri, Hafnarfjarðarbær
Púlsmælingar Moodup gefa okkur verðmæta innsýn í líðan starfsfólks í hverjum mánuði. Samanburður við aðra vinnustaði sýnir okkur hvar við getum gert ennþá betur. moodup er lykilhluti af stefnu okkar um að vera eftirsóknarverður vinnustaður.
Finnur Oddsson
Finnur Oddsson
Forstjóri, Hagar
Starfsfólkinu okkar hefur gengið virkilega vel að aðlagast Kjarna, notendaviðmótið er mjög þægilegt. Þetta er einfalt fyrir stjórnendur í þeirra vinnu, það einfaldaði mikið úr því kerfi sem við vorum í áður.
Haukur Þór Arnarsson
Haukur Þór Arnarsson
Fyrrverandi deildarstjóri launadeildar, Hafnarfjarðarbær
Kjarni er að mínu mati besta mannauðs- og launakerfið á markaðnum í dag.
Ásmundur H. Jónsson
Ásmundur H. Jónsson
Forstöðumaður, Pósturinn
Kjarni hefur fært okkur alla helstu virkni sem nútíma launakerfi búa yfir.
Kristján H. Kristjánsson
Kristján H. Kristjánsson
Mannauðsstjóri, Slippurinn Akureyri
Starfsánægja og menning skiptir okkur miklu máli. Við höfum áður prófað aðrar lausnir, en aldrei áður hef ég kynnst jafn notendavænu og öflugu tóli. Það sem kom okkur einnig skemmtileg á óvart er hversu frábært svarhlutfall við erum að fá eftir að hafa innleitt Moodup.
Valur Þór Gunnarsson
Valur Þór Gunnarsson
Framkvæmdastjóri, Taktikal
Fegurðin í þessu eru þessir fjölbreyttu möguleikar í kerfinu. Það eru mikil þægindi fólgin í því að geta aukið skýrslugjöf og annað til stjórnenda. Það auðveldar yfirsýn yfir t.d. tímafjölda, kostnað og útborganir.
Þröstur Magnússon
Þröstur Magnússon
Starfsmannstjóri, Rarik
Við notum Moodup með frábærum árangri. Viðmótið er til fyrirmyndar og hjálpar okkur að viðhalda háu svarhlutfalli. Þá er einfalt að lesa úr niðurstöðum mælinga sem tryggir eftirfylgni og umbætur. Loks er þjónustan fyrsta flokks. Ég mæli hiklaust með Moodup fyrir allar stærðir og tegundir fyrirtækja.
Brynjar Már Brynjólfsson
Brynjar Már Brynjólfsson
Mannauðsstjóri, Isavia
Kjarni er einfalt í notkun, aðgengilegt og notendavænt. Kerfið auðveldar stjórnendum að hafa yfirsýn og aðgengi að mikilvægum gögnum. Með innleiðingu Kjarna hefur álag á mannauðssvið minnkað þar sem starfsfólk hefur núna aðgang að aukinni sjálfsþjónustu í gegnum starfsmannavef Kjarna.
Berglind Bergþórsdóttir
Berglind Bergþórsdóttir
Mannauðsstjóri, Askja
Kerfið hentar þörfum sveitarfélaga afar vel. Það besta við Kjarna er þó þjónustan sem honum fylgir.
Soffía Snædís Sveinsdóttir
Soffía Snædís Sveinsdóttir
Deildarstjóri launadeildar, Grindavíkurbær
Kjarni hefur reynst okkur frábær lausn – bæði notendavæn og árangursrík – fyrir launadeild, starfsmenn og stjórnendur.
Lilja Sóley Pálsdóttir
Lilja Sóley Pálsdóttir
Aðalbókari, Orkusalan
Með púlsmælingum Moodup gefst okkur tækifæri til að hlusta á raddir allra starfsmanna og nálgast þá á einfaldan hátt. Það skiptir okkur miklu máli að fá endurgjöf frá starfsfólki til að gera sífellt betur og byggja upp góða fyrirtækjamenningu til framtíðar.
Þórey Jónsdóttir
Þórey Jónsdóttir
Mannauðsstjóri, Coripharma

Af hverju velja framsækin fyrirtæki Corus?

Accordion-mynd

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samtal. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

2 min read
Corus er fyrir fólkið!
Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og...
2 min read
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að...
1 min read
Við kynnum CORUS til leiks!
Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt...
1 min read
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?
Hjá flestum fyrirtækjum búa mannauðs- og launakerfi yfir mikilvægum upplýsingum um starfsmannahópinn. Á sama tíma gefa...
2 min read
Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni
Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar...
2 min read
Mat og skráning á hæfni sem lykill að þjálfun og auknu öryggi
Þessi grein byggir á erindi sem Hulda Ólafsdóttir Klein, deildarstjóri upplýsingatæknideildar Norðuráls, og Magnús...