Bætt upplýsingagjöf
Kjarni sameinar öll mannauðs- og launamál í einni heildarlausn sem sparar tíma, bætir yfirsýn og styður við betri ákvarðanir.
Skilvirk launavinnsla
Lágmarkaðu handavinnu og mannleg mistök með sjálfvirkum ferlum í launavinnslu. Fullkomið flæði er á milli kerfishluta sem og yfir í önnur kerfi.
Sjálfstæði starfsfólks
Kjarni veitir starfsfólki og stjórnendum greiðan aðgang að eigin gögnum. Það eykur traust, minnkar flækjustig og minnkar álag á mannauðs- og launadeildum.
Upplýstar ákvarðanir
Með öflugum greiningum og skýrslum í Kjarna getur þú tekið ákvarðanir byggðar á staðreyndum fremur en tilfinningu. Fáðu innsýn í mannauðinn sem hjálpar þér að hlúa að vexti og vellíðan starfsfólks.
Kerfishlutar Kjarna
Allt sem þú þarft á einum stað
Hvað segja viðskiptavinir Kjarna?
Umsagnir viðskiptavina
Allar uppflettingar, launasamþykktir og skýrslugerðir eru sérlega þægilegar. Allt viðmót er mjög notendavænt og hjálpin sérlega auðlesin og gagnleg.
Við höfum greint tvo ferla sem hafa skilað okkur 22,6 milljónum eða 2 stöðugildum á ári bara í krónum og aurum, grjóthart, í hagræðingu. Við erum bara rétt að byrja.
Starfsfólkinu okkar hefur gengið virkilega vel að aðlagast Kjarna, notendaviðmótið er mjög þægilegt. Þetta er einfalt fyrir stjórnendur í þeirra vinnu, það einfaldaði mikið úr því kerfi sem við vorum í áður.
Kjarni er að mínu mati besta mannauðs- og launakerfið á markaðnum í dag.
Kjarni hefur fært okkur alla helstu virkni sem nútíma launakerfi búa yfir.
Fegurðin í þessu eru þessir fjölbreyttu möguleikar í kerfinu. Það eru mikil þægindi fólgin í því að geta aukið skýrslugjöf og annað til stjórnenda. Það auðveldar yfirsýn yfir t.d. tímafjölda, kostnað og útborganir.
Kjarni er einfalt í notkun, aðgengilegt og notendavænt. Kerfið auðveldar stjórnendum að hafa yfirsýn og aðgengi að mikilvægum gögnum. Með innleiðingu Kjarna hefur álag á mannauðssvið minnkað þar sem starfsfólk hefur núna aðgang að aukinni sjálfsþjónustu í gegnum starfsmannavef Kjarna.
Kerfið hentar þörfum sveitarfélaga afar vel. Það besta við Kjarna er þó þjónustan sem honum fylgir.
Kjarni hefur reynst okkur frábær lausn – bæði notendavæn og árangursrík – fyrir launadeild, starfsmenn og stjórnendur.
Spurt og svarað
Algengar spurningar um Kjarna
-
Er hægt að fá prufuaðgang að Kjarna?
Eins og er þá er ekki hægt að fá prufuaðgang en við bjóðum upp á að bóka kynningu sem þú getur gert hér í gegnum síðuna.
-
Er hægt að hafa umsóknarferli mismunandi á milli auglýstra starfa?
Já, hægt er að hafa mismunandi sniðmát fyrir auglýsingar í Kjarna. Notendur geta sjálfir stillt hvaða spurninga á að spyrja í umsóknarferlinu, í hvaða röð og hvaða spurningar eru skilyrtar og hverjar ekki.
-
Er hægt að halda utan um starfsaldur?
Já, Kjarni sér um að reikna út starfsaldur starfsfólks, bæði til launa og til viðurkenninga. Kjarni kemur með athugasemd þegar kemur að launahækkun eða orlofsflokkahækkun út frá þeim forsendum sem skráðar eru í kjarasamning/stéttarfélög.
-
Getur starfsfólk haft aðgang að eigin upplýsingum í Kjarna?
Já, á starfsmannavef getur starfsfólk nálgast sínar eigin upplýsingar sem skráðar eru í Kjarna, t.d. séð yfirlit yfir þau námskeið sem þau hafa sótt, yfirlit yfir menntun, starfsaldursupplýsingar og margt fleira. Starfsmannavefinn er hægt að tengja við innri vef fyrirtækisins.
-
Hvernig er gagnaöryggi háttað þegar launagögn eru geymd í skýinu?
Hýsingin eru í öruggu og ISO vottuðu hýsingarumhverfi Origo. Gögnin eru í raun öruggari þar en á netþjóni í fyrirtækinu þínu.
-
Hvernig tekst Kjarni á við það ef skrifað er undir kjarasamninga rétt fyrir útborgun launa?
Í Kjarna er aðgerð sem keyrð er til að leiðrétta laun afturvirkt, út frá nýjum launatöflum. Aðgerðin er alsjálfvirk og skilar áður greiddum launum sem mínusfærslum og sömu einingum í plús á móti með nýrri upphæð úr nýrri launatöflu.
-
Styður Kjarni við jafnlaunavottun?
Í Kjarna er hægt að halda utan um veðrmætamat starfa. Kjarni styður hverja þá leið sem fyrirtæki ákveða að fara í tengslum við þetta verðmætamat, t.d. Logib flokkun, yfir- og undirviðmið, starfsmaat og starfafjölskyldur. Í Kjarna er einnig hægt að skrá launaramma á störf og þannig sjá hvaða starfsmenn fara út fyrir þann launaramma auk þess sem hægt er að skrá rökstuðning á þeim frávikum.
Viltu vita meira?
Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.
Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.
2 min read
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Corus: jan. 23, 2026
1 min read
Við kynnum CORUS til leiks!
Corus: des. 29, 2025
1 min read
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?
Corus: okt. 6, 2025
2 min read
Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni
Corus: okt. 2, 2025
2 min read
Mat og skráning á hæfni sem lykill að þjálfun og auknu öryggi
Corus: sep. 4, 2025
Corus er fyrir fólkið!
mar. 17, 2026
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
jan. 23, 2026
Við kynnum CORUS til leiks!
des. 29, 2025