Upplýstari ákvarðanir
Taktu ákvarðanir byggðar á traustum gögnum, ekki ágiskunum. Fylgstu með þróun lykilmælikvarða og greindu tækifæri til umbóta.
Heildaryfirsýn í rauntíma
Fylgstu með öllum mikilvægum mælaborðum á einum stað. Fáðu skýra mynd af öllum lykilupplýsingum.
Sérsniðnar greiningar
Búðu til þínar eigin skýrslur með einföldu viðmóti. Við bætum reglulega við nýjum greiningarmöguleikum.
Öflugt greiningartól með Microsoft Power BI
Viðskiptagreind Kjarna byggir á Microsoft Power BI, sem er leiðandi lausn í gagnagreiningu. Með notendavænu viðmóti er einfalt að búa til og deila skýrslum innan fyrirtækisins. Öflugar aðgangsstýringar tryggja að réttir aðilar hafi aðgang að viðeigandi gögnum og mögulegt er að tengja við önnur gögn til að fá enn heildstæðari mynd af rekstrinum.
Viðskiptagreind Kjarna
Allt innbyggt og tilbúið til notkunar
Vefþjónustur
Öruggt og einfalt aðgengi að öllum þínum gögnum í Kjarna. Reglulegar uppfærslur og nýjar gagnaupplýsingar bætast stöðugt við til að mæta þínum þörfum.
Gagnamódel
Þróað af sérfræðingum til að tryggja hraða og skilvirka gagnavinnslu, sérstaklega aðlagað að Kjarna með áherslu á einfalda tengingu milli ólíkra gagnategunda.
Grunnskýrslur
Heildstætt safn af fyrir fram uppsettum greiningum og skýrslum sem þú getur byrjað að nota strax, með reglulegum uppfærslum og möguleika á að aðlaga eftir þínum þörfum.
Stuðningur við þitt teymi
Við leggjum áherslu á að veita þér allan stuðning sem þú þarft til að ná hámarksárangri. Fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í gagnagreiningu bjóðum við upp á sérsniðin námskeið í Microsoft Power BI. Við aðstoðum einnig við uppsetningu og aðlaganir, veitum ráðgjöf og gagnagreiningu og getum útvegað Power BI leyfi ef þörf krefur.
Viltu vita meira?
Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.
Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.
Við kynnum CORUS til leiks!
des. 29, 2025
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?
okt. 6, 2025