Markvissari samtöl með frammistöðumati í Kjarna

Frammistöðumat í Kjarna einfaldar utanumhald starfsmanna- og starfsþróunarsamtala. Starfsfólk og stjórnendur geta undirbúið sig fyrir samtalið, svarað spurningum og skráð niðurstöður á einum stað.

Document - Green
Betri undirbúningur

Starfsmaður og stjórnandi svara spurningum fyrir samtalið og mæta betur undirbúin.

Connect - Yellow
Sveigjanleg uppsetning

Búðu til spurningar og eyðublöð sem henta þínu fyrirtæki og mismunandi tegundum samtala.

Checkmark - Pink
Skýr yfirsýn

Fylgstu með stöðu samtala, svarfrestum og niðurstöðum á einum stað.

Betri samtöl sem styðja við starfsþróun

Með Frammistöðumati í Kjarna fær fyrirtækið skýran ramma utan um undirbúning, framkvæmd og eftirfylgni starfsmannasamtala.

Starfsmaður og stjórnandi geta svarað sömu spurningum hvor í sínu lagi og nýtt svörin sem grunn að markvissu samtali. Að samtali loknu er hægt að skrá sameiginlega niðurstöðu og ljúka ferlinu á einum stað.

Þannig verða samtölin markvissari og auðveldara verður að fylgja eftir því sem rætt var um.

Fabian

Sveigjanleg lausn fyrir markvissari samtöl

 
Spurningar og eyðublöð eftir þínum þörfum

Byggðu upp eigin spurningabanka og búðu til mismunandi eyðublöð eftir tilgangi samtalsins. Hægt er að velja hvort spurningar séu ætlaðar starfsmanni, stjórnanda eða báðum.

Minni umsýsla og betri yfirsýn

Stofnaðu frammistöðumat fyrir einstaka starfsmenn, hópa eða fyrirtæki, skilgreindu svarfresti og áminningar og fylgstu með stöðu matsins á einum stað.

Skýr niðurstaða og sveigjanleiki

Starfsmaður og stjórnandi geta svarað hvor í sínu lagi og að samtali loknu er hægt að skrá sameiginlega niðurstöðu. Einnig er hægt að bjóða spurningar á fleiri tungumálum eftir þörfum.

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Corus stækkar teymið og styrkir framtíðarsýn Kjarna og Moodup
Corus vill gefa stjórnendum betri innsýn í mannauðsmál. Corus hefur á undanförnum árum byggt upp tvær lykillausnir...
Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“
Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í...
Frá Yatzy til Kjarna - Ævintýralegur ferill Torfa
Guðmundur Torfi Gíslason ætlaði upphaflega að læra viðskiptafræði en féll fyrir forritun eftir fyrsta tímann. Síðan þá...