Þriðjudagur 5. maí kl. 08:30 - 11:30 á Hótel Grand

Vorráðstefna Corus: Mannauður í mótun

Framtíð gagna, gervigreindar og mannlegra tengsla

Taktu þátt í morgunviðburði þar sem við skoðum hvernig tækni, gögn og nýjar nálganir eru að móta mannauðsmál í dag.

Við bjóðum þér á Vorráðstefnu Corus, spennandi morgunviðburð þar sem við köfum ofan í þær öru breytingar sem eiga sér stað í heimi mannauðsmála.
Við rýnum í hvernig tækni og gögn geta stutt við mannleg tengsl og betri ákvarðanir á vinnustöðum ásamt því að fá til okkar framsækna stjórnendur sem deila reynslu sinni.
Ráðstefnan fer fram þriðjudaginn 5. mars frá kl. 08:30 - 11:30 í Háteig á Hótel Grand.
Innsýn
Innsýn

Innsýn í hvernig leiðandi fyrirtæki nálgast mannauðsmál í dag.

 

Dæmi
Dæmi

Raunveruleg dæmi og reynslusögur úr íslensku atvinnulífi.

Hugmyndir
Hugmyndir

Hagnýtar hugmyndir og verkfæri sem þú getur nýtt strax í þínu starfi.

Tengslamyndun
Tengslamyndun

Dýrmætt tækifæri til að hitta samstarfsfólk í faginu og efla tengslanetið.

Dagskrá

08:30 - 09:00
Morgunmatur
09:00 - 09:10
Dröfn Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri Corus

Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Corus, opnar ráðstefnuna.

09:10 - 09:30
Ægir Viktorsson
Director of Business Support, Bláa Lónið

Ægir Viktorsson, Director of Business Support hjá Bláa Lóninu fer yfir áhugaverð verkefni sem eru í vinnslu hjá fyrirtækinu ásamt því að snerta á reynslu þeirra af Kjarna mannauðs- og launakerfi.

09:30 - 09:50
Brynjar Már Brynjólfsson
Mannauðsstjóri, Isavia

Allt er hægt, bara ef þú trúir á það. Brynjar fjallar um stafræna umbreytingu hjá Isavia og hvernig tengingar milli kerfa hafa einfaldað ferla og dregið úr handvirkri skráningu.

Þá mun hann einnig gefa innsýn í hvernig hann hefur nýtt gervigreindartólið Claude til að skapa snjallar og áhrifaríkar lausnir.

09:50 - 10:10
Eva Demireva & Guðrún Valdís Jónsdóttir
Syndis

Hvernig tryggjum við að mannauðsgögn okkar komist ekki í rangar hendur? 

Í heimi gervigreindar þar sem við erum sífellt að leita leiða til að einfalda okkur lífið með snjöllum lausnum aukast bæði tækifæri og áhættur.

Guðrún Valdís Jónsdóttir, forstöðumaður ráðgjafasviðs Syndis og Eva Demireva, mannauðsstjóri Syndis, fara yfir helstu áskoranir og hagnýtar leiðir til að vernda mannauðsgögn í síbreytilegu tækniumhverfi.

10:10 - 10:40
Hlé

Léttar veitingar og tengslamyndun

10:40 - 11:00
Halla Árnadóttir

Halla fer yfir spennandi vegferð Kjarna á næstu misserum. Hvað er á döfinni í vöruþróun og hvaða nýjungar munu einfalda vinnudaginn okkar.

11:00 - 11:20
Davíð Tómas Tómasson

Tökum púlsinn á fólkinu okkar. Hvernig getum við betur skilið líðan og upplifun starfsfólks? Davíð fjallar um mikilvægi reglulegra mælinga og hvernig innsýn í gögn getur hjálpað fyrirtækjum að bregðast fyrr við og styðja betur við starfsfólk sitt. 

11:20 - 11:30
Ráðstefnulok

 

 

 

Skráning á Vorráðstefnu Corus

Framtíð gagna, gervigreindar og mannlegra tengsla.

3 min read
Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna
Mars útgáfa Kjarna er komin út, stútfull af nýjungum sem einfalda umsýslu og daglegt starf mannauðs- og launafólks....
2 min read
Corus er fyrir fólkið!
Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og...
2 min read
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að...
1 min read
Við kynnum CORUS til leiks!
Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt...
1 min read
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?
Hjá flestum fyrirtækjum búa mannauðs- og launakerfi yfir mikilvægum upplýsingum um starfsmannahópinn. Á sama tíma gefa...
2 min read
Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni
Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar...
Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna
Mars útgáfa Kjarna er komin út, stútfull af nýjungum sem einfalda umsýslu og daglegt starf mannauðs- og launafólks....
Corus er fyrir fólkið!
Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og...
Hvað segja veikindafjarvistir um líðan starfsfólks?
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að...