Áreiðanleg og sjálfvirk vinnsla sjómannalauna með Fiska
Fiska er kerfishluti innan Kjarna þar sem haldið er utan um allar lykilforsendur útreiknings fyrir sjómannalaun, þar á meðal skip, skiptaprósentur, kaupliði og önnur skilyrði sem skipta máli við útreikning hlutar.
Fyrir útgerðir þýðir þetta að hægt er að halda utan um alla launavinnslu á einum stað, hvort sem fólk starfar á sjó eða landi.
Sjálfvirkur útreikningur
Kerfið reiknar aflahlut út frá aflaverðmæti og öðrum forsendum og skilar niðurstöðum beint í launakerfi Kjarna til endanlegrar launavinnslu.
Samþætting við sölukerfi
Með vefþjónustum er hægt að sækja aflaverðmæti sjálfvirkt úr öðrum kerfum, sem lágmarkar handavinnu og eykur nákvæmni.
Gögnin flæða á réttan stað
Aflaverðmæti sem berst frá sölukerfum flæðir sjálfkrafa inn í útreikninginn og niðurstöður úr uppgjöri skila sér áfram í launavinnslu og skýrslugerð - það tryggir nákvæmni og rekjanleika frá löndun til útborgunar.
Sniðið að þörfum útgerða
Fiska styður við flókinn útreikning sjómannalauna
Viltu vita meira?
Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.
Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.
Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“
sep. 29, 2026
Frá Yatzy til Kjarna - Ævintýralegur ferill Torfa
sep. 29, 2026