Áreiðanleg og sjálfvirk vinnsla sjómannalauna með Fiska

Fiska er kerfishluti innan Kjarna þar sem haldið er utan um allar lykilforsendur útreiknings fyrir sjómannalaun, þar á meðal skip, skiptaprósentur, kaupliði og önnur skilyrði sem skipta máli við útreikning hlutar.

Fyrir útgerðir þýðir þetta að hægt er að halda utan um alla launavinnslu á einum stað, hvort sem fólk starfar á sjó eða landi.

Zoom - Green
Sjálfvirkur útreikningur

Kerfið reiknar aflahlut út frá aflaverðmæti og öðrum forsendum og skilar niðurstöðum beint í launakerfi Kjarna til endanlegrar launavinnslu.

Connect - Yellow
Samþætting við sölukerfi

Með vefþjónustum er hægt að sækja aflaverðmæti sjálfvirkt úr öðrum kerfum, sem lágmarkar handavinnu og eykur nákvæmni.

Gögnin flæða á réttan stað

Aflaverðmæti sem berst frá sölukerfum flæðir sjálfkrafa inn í útreikninginn og niðurstöður úr uppgjöri skila sér áfram í launavinnslu og skýrslugerð - það tryggir nákvæmni og rekjanleika frá löndun til útborgunar.

Desktop

Sniðið að þörfum útgerða

Fiska styður við flókinn útreikning sjómannalauna

 
Skip og skiptakjör

Öll stofngögn eru a einum stað: Skip, skiptaprósentur, kaupliðir og önnur skilyrði sem hafa áhrif á útreikning aflahlutar.

Fyrirframgreiðslur

Hægt er að greiða sjómönnum innborgun á milli uppgjöra sem síðan er gerð upp þegar endanlegt uppgjör liggur fyrir.

Ein launavinnsla fyrir alla

Sjómenn eru starfsmenn í Kjarna eins og aðrir, svo laun þeirra eru unnin á sama stað og laun annars starfsfólks.

 

 

 

Viltu vita meira?

Við erum alltaf til í samband. Hvort sem þú vilt bóka kynningu eða fá ráðgjöf varðandi mannauðs- eða launamál, þá erum við til staðar.

Fylltu út formið til að hafa samband, við hlökkum til að heyra frá þér.

Ráðgjafaframboð 2026-2027
Nýtt ráðgjafaframboð Corus Við höfum sett saman ráðgjafaframboð Corus fyrir komandi starfsár. Þar er allt frá stökum...
Ný teymissía gerir sundurliðun sveigjanlegri
Sundurliðunin hefur verið tekin í gegn og einnig bætt við hana nýrri teymissíu sem gefur þér meiri stjórn á því hvernig...
Myndrænt skipurit, matseðill dagsins og nýr öryggiseiginleiki í ráðningum í júní útgáfu Kjarna
Júní útgáfa Kjarna er komin út með fjölda nýjunga sem einfalda daglegt starf og bæta upplifun notenda. Meðal stærstu...