Launahringurinn frá A-Ö
Vefnámskeið - Teams
Tveir hlutar: 14. og 15. október
Lýsing
Vefnámskeið á Teams þar sem farið er yfir launahringinn í Kjarna frá A-Ö.
Á námskeiðinu verður farið í ýmsar aðgerðir launahluta kerfisins, m.a. launavinnslu, leiðréttingu launa og uppgjör starfsmanna við starfslok.
Farið verður yfir ofantalin atriði og sýnd dæmi. Þátttakendur gera engar æfingar á þessu námskeiði.
Námskeiðinu er skipt á tvo daga og er yfirferðin 1,5 klukkustundir í senn. Fundarboð með hlekk á námskeiðið verður sent í tölvupósti degi fyrir námskeiðið.
Skráningu lýkur mánudaginn 12. október 2026.
Dagsetning:
-
Fyrri hluti: Miðvikudagur 14. október 13:00-14:30
- Seinni hluti: Fimmtudagur 15. október 13:00-14:30
Staður: Vefnámskeið á Teams
Verð: 33.000 kr.
Leiðbeinandi: Launaráðgjafi Kjarna
Fyrir hverja: Námskeiðið er hugsað fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í Kjarna eða þau sem vilja rifja upp grunninn. Mælum með því að þátttakendur hafi tekið þátt í launavinnslu í Kjarna a.m.k. 1x-2x áður en komið er á námskeiðið.
Athugið
Corus áskilur sér rétt til að fella námskeiðið niður eða auglýsa aðra tímasetningu ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Öll námskeið eða námskeiðahluta er hægt að sérpanta fyrir einstök fyrirtæki og stofnanir.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um sérsniðið námskeið skal senda tölvupóst á hjalp@corus.is