Mannauðs- og launakerfi í takt við þarfir sveitarfélaga
Mikið af virkni í Kjarna hefur verið þróuð í góðu samstarfi við sveitarfélög og með þau sérstaklega í huga. Ráðgjafar okkar hafa þekkingu og reynslu...
Við vitum flest hversu miklu máli helgun skiptir fyrir árangur fyrirtækja, en af hverju gerum við þá ekki meira af því sem rannsóknir sýna að virkar til að bæta hana?
Það er ekki vegna þess að okkur skorti greinar um góða stjórnun.
Netið er stútfullt af listum yfir það sem góðir stjórnendur gera. Við lesum þær, kinkum kolli og vistum jafnvel þær bestu en tökum samt ekki samtalið sem hefur beðið á verkefnalistanum í margar vikur.
Ástæðurnar geta verið ólíkar: tímaskortur, óskýrar væntingar, of lítil æfing eða kannski bara frestunarárátta.
En oftar en við viljum viðurkenna er eitthvað dýpra á ferð.
Okkur vantar hugrekki.
Í ráðgjöfinni sé ég mynstur sem endurtekur sig.
Stjórnandi leitar til mannauðsteymisins og vill losna við starfsmann: „Hann er bara ekki að standa sig.“
Þegar ég spyr hvenær viðkomandi fékk síðast skýra endurgjöf verður þögn.
Samtalið hafði aldrei átt sér stað.
Manneskja er á leið út af vinnustaðnum án þess að hafa fengið tækifæri til að bæta hegðun sína af því að stjórnandanum fannst óþægilegt að koma hreint fram og ræða það sem betur mátti fara.
Stjórnandi ber við tillitssemi. „Ég vildi ekki særa hann.“
En þegar við hlífum fólki við endurgjöf erum við ekki að vernda það. Við erum að stela af því tækifærinu til að vaxa og réttinum til að vita hvar það stendur.
Þá erum við orðin þroskaþjófar, oft í góðri trú, en þjófar samt. Að veita skýra endurgjöf er í raun gjöf sem gefur viðtakanda annað tækifæri.
Hlutverk stjórnanda er að rétta fólki áttavita, ekki að velja eigin þægindi fram yfir þroska annarra.
Góðvild og skýrar kröfur eru ekki andstæður. Við getum sýnt starfsfólki einlæga hlýju á sama tíma og við erum skýr um þær kröfur sem við gerum til þess. Einmitt þannig ýtum við undir þroska og þróun í stað þess að standa í vegi fyrir hvoru tveggja.
Hér skiptir eitt máli: óttinn er sjaldnast meðvitaður.
Enginn stjórnandi hugsar „ég þori þessu ekki“. Við upplifum tímaleysi „ég næ þessu í næstu viku“ og vikurnar líða.
En ef sama samtalið færist á milli vikna aftur og aftur er spurningin kannski ekki „hvenær hef ég tíma?“ heldur: við hvað erum við hrædd?
Viðbrögðin? Tárin? Að fólki hætti að líka við okkur? Að starfsmaður reiðist? Að opna samtal sem við kunnum ekki að loka?
Kannski er fyrsta erfiða samtalið ekki við starfsmanninn heldur við okkur sjálf: Af hverju finnst mér þetta erfitt?
Þetta er ekki jaðarvandamál.
Í mælingum sem gerðar hafa verið á hegðun stjórnenda í gegnum árin er niðurstaðan oft sú að regluleg, uppbyggileg endurgjafarsamtöl eru það sem stjórnendur fá lægstu einkunn fyrir.
Það er ákveðin þversögn í þessu. Það sem stjórnendur veigra sér oft mest við að gera er líka það sem rannsóknir sýna að hafi hvað mest áhrif á helgun starfsfólks.
Við gleymum nefnilega stundum að helgun verður ekki til í stórum stefnuskjölum eða glæsilegum kynningum.
Hún verður til í litlu samtölunum sem voru tekin og glatast í samtalinu sem var aldrei tekið.
Hugsaðu þetta eins og líkamsrækt.
Enginn telur það veikleikamerki að fá sér einkaþjálfara, þjálfarinn kennir tæknina, veitir þér aðhald í að æfa og passar að þú gefist ekki upp.
Erfið samtöl eru nákvæmlega svona færni: þau þarf að æfa í öruggu rými þar sem má gera mistök.
Enginn verður sterkur af því að lesa um lyftingar og enginn öðlast hugrekki í samtölum af því einu að lesa greinar um þau.
Vinnustaðir sem vilja framúrskarandi árangur byrja ekki á fleiri fyrirlestrum heldur á því að gefa stjórnendum verkfæri, þjálfun og öryggi til að taka samtölin sem skipta máli.
Þetta snýst um að þora að vera hugrakkur stjórnandi.
En ef hugrekkið er til staðar vaknar önnur spurning: Af hverju höfum við hannað vinnuna þannig að mikilvægustu samtölin verði oft að árlegum viðburði í stað þess að vera hluti af daglegri stjórnun?
Kristín Helga Lárusdóttir | Leiðtogi ráðgjafarþjónustu Corus
Hugrekki í samtölum er færni sem hægt er að þjálfa. Ráðgjöf Corus vinnur með stjórnendum að því að taka samtölin sem skipta máli, með vinnustofum, þjálfun og markþjálfun. Endilega kynnið ykkur þjónustuna Corus ráðgjöf eða sendið mér línu kristin@corus.is.
Mikið af virkni í Kjarna hefur verið þróuð í góðu samstarfi við sveitarfélög og með þau sérstaklega í huga. Ráðgjafar okkar hafa þekkingu og reynslu...
Birkir Svan Ólafsson, mannauðssérfræðingur hjá Kviku fer yfir ávinninginn af viðskiptagreind Kjarna og deilir hagnýtum ráðum sem geta hjálpað þér að...
1 min read
Nýtt ráðgjarfaframboð Corus Við höfum sett saman ráðgjarfaframboð Corus fyrir komandi starfsár. Þar er allt frá stökum þriggja tíma námskeiðum...