Nýtt ráðgjafaframboð Corus
Við höfum sett saman ráðgjafaframboð Corus fyrir komandi starfsár. Þar er allt frá stökum þriggja tíma námskeiðum og vinnustofum upp í sex mánaða stjórnendaakademíu. Kynningin á vöruframboðinu í heild er aðgengileg neðst í þessari frétt.
Stök námskeið virka vel og er fjölbreytt úrval í boði hjá Corus. En mestur árangur næst þegar stjórnendur fá stuðning við að yfirfæra efnið á sín eigin verkefni. Þess vegna er eftirfylgni, handleiðsla og markþjálfun ofin inn í ráðgjafaframboðið, og við notum Moodup, bæði púlskannanir og stjórnendamælingar, til að fylgjast með því hvort þjálfunin sé að skila sér.
Þrennt í brennidepli
Stjórnendaakademían er kjarninn í framboðinu. Fjögurra til sex mánaða þjálfun fyrir stjórnendahópa þar sem skiptast á námskeið, vinnustofur og 1:1 markþjálfun, með stjórnendamati í upphafi og lok. Á milli lota fá stjórnendur handleiðslu við að yfirfæra efnið á sinn eigin veruleika, því það er þar sem færnin festist í sessi.
Moodup-eftirfylgni er fyrir vinnustaði sem eru komnir með niðurstöður í hendurnar og vilja að þær leiði til raunverulegra breytinga og samræmi í úrvinnslu milli stjórnenda. Við höldum úrvinnsluvinnustofu þar sem aðgerðaáætlun verður til, með ábyrgð og tímaramma, og tökum svo stöðuna fjórum til sex vikum síðar. Þegar unnið er úr niðurstöðum kannana og aðgerðir kynntar starfsfólki eykst ánægja og traust til muna og fólk upplifir að á það sé hlustað.
Starfshönnun og gervigreind við kortleggjum verkefni valinna starfa, endurhönnum hlutverk í vinnustofum með stjórnendum og fylgjum breytingunum eftir. Markmiðið er að starfslýsingar og hæfnikröfur séu skýrar þegar tæknin breytir verkaskiptingunni.
Stakar einingar
Að auki bjóðum við níu stakar einingar, þriggja tíma námskeið og vinnustofur sem eru aðlagaðar hverjum vinnustað og tengdar drifkröftum Moodup. Þær má bóka einar og sér eða sem hluta af stærri pakka:
- Námskeið: Öflugur leiðtogi · Stjórnun og erfið samtöl · Þjálfun í svörun á endurgjöf · Streita og kulnun: ábyrgð stjórnenda · Að leiða breytingar
- Vinnustofur: Úrvinnsla Moodup-niðurstaðna · Árangursrík samskipti · Sálfræðilegt öryggi og teymismenning · Viðurkenning og endurgjöf
- 1:1 stjórnendaþjálfun og markþjálfun, seld í pökkum eða í kjölfar námskeiðs
Fyrsta skrefið er samtal
Í kynningunni er farið yfir hverja leið fyrir sig og hvað situr eftir. Ef þið viljið skoða hvað hentar ykkar vinnustað bjóðum við upp á stutt samtal um stöðuna og mögulegar leiðir.
Kristín Helga Lárusdóttir
Stjórnendaráðgjafi og ACC-vottaður markþjálfi