Markaðs- og
sölusérfræðingur
Umsóknarfrestur: 05.05.2026
Við leitum að metnaðarfullum markaðs- og sölusérfræðingi sem mun gegna lykilhlutverki í þróun og vexti Corus. Í þessu hlutverki munt þú bæði þróa og framkvæma markaðsstefnu Corus og taka þátt í sölu á lausnum Corus.
Corus er hugbúnaðarfyrirtæki sem býður íslenskum fyrirtækjum og stofnunum traustan samstarfsaðila fyrir öll mannauðs- og launamál. Lykillausnir félagsins eru Kjarni, mannauðs- og launakerfi og Moodup starfsánægjumælingar. Hjá félaginu starfa 27 starfsmenn. Fjöldi viðskiptavina félagsins eru hátt í 300 fyrirtæki og stofnanir.
Smelltu hér til að sækja um →
Helstu verkefni og ábyrgð
Markaðssetning og vörumerkjauppbygging
- Þróa og framkvæma markaðsáætlun fyrir lausnir félagsins.
- Umsjón með efnisgerð, þ.m.t. umsjón með vef og greinarskrifum.
- Umsjón með stafrænni markaðssetningu.
- Skipuleggja og taka þátt í fagráðstefnum, viðburðum og kynningum.
- Fylgjast með þróun markaðarins og þróun mannauðs- og launamála.
Sala og viðskiptaþróun
- Taka þátt í sölu, allt frá kynningum yfir í tilboðsgerð og lokun samninga.
- Þróa og viðhalda tengslum við lykilviðskiptavini.
- Þróa og fylgja eftir sölupípu.
- Straumlínulaga ferli frá markaðssetningu til þjónustu.
- Vinna náið með þróunar- og þjónustuteymum til að tryggja ánægju viðskiptavina.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af B2B sölu og markaðssetningu hugbúnaðarlausna.
- Reynsla af sölu mannauðslausna er kostur.
- Leikni í stafrænni markaðssetningu og helstu markaðsverkfærum, t.d. HubSpot.
- Skilningur á mannauðsferlum er kostur.
- Framúrskarandi samskiptafærni.
- Mjög góð skipulagsfærni og hæfni til að forgangsraða í kraftmiklu umhverfi.
Fríðindi
- Að vera hluti af samstilltu teymi hjá Corus.
- Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki.
- Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf.
- Vinnustað sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti.
- Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
- Hvatningu til að þróast í starfi og efla þekkingu.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Nánari upplýsingar veitir Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Corus, drofn@corus.is