Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni
Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar mannauðslausnir eru í eigu Skyggnis...
Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt mannauðstæknifyrirtæki. Það félag hefur nú hlotið nafnið CORUS ehf.
Tilgangur CORUS ehf. er að bjóða íslenskum fyrirtækjum og stofnunum traustan samstarfsaðila fyrir öll mannauðs- og launamál.
Hið nýja félag, CORUS ehf., mun taka formlega til starfa þann 1. janúar 2026 og við það tímamark flyst öll þjónusta Kjarna mannauðs- og launalausna yfir í hið nýja félag. Þar undir falla allir samningar við núverandi viðskiptavini Kjarna.
Kennitala Corus byggir á kennitölu Moodup. Því verður ekki breyting á samningsaðila eða þjónustuveitanda Moodup, nema sú breyting að Moodup er hér eftir hugbúnaðarlausn frá Corus.
Á vef Corus er hægt að nálgast upplýsingar um lausnir okkar – Kjarna, Moodup og Rúnu.
Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar mannauðslausnir eru í eigu Skyggnis...
Flest okkar verja stórum hluta vökutíma í vinnunni. Það skiptir því miklu máli að starfsfólki líði vel í vinnunni, að það hafi tækifæri til að vinna...
Hjá flestum fyrirtækjum búa mannauðs- og launakerfi yfir mikilvægum upplýsingum um starfsmannahópinn. Á sama tíma gefa starfsánægjumælingar dýrmætar...