2 min read

Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“

Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“

Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í janúar.

Reykjavíkurborg er einn stærsti vinnustaður landsins með yfir 12.000 launþega, fjölbreyttan rekstur og mikinn fjölda kjarasamninga, starfsheita og ólíks ráðningar- og launafyrirkomulags. Innleiðing nýs mannauðs- og launakerfis er því umfangsmikið verkefni þar sem samræming gagna og verkferla skiptir miklu máli.

„Við erum ekki eingöngu að skipta út kerfi heldur um leið að yfirfara og samræma verkferla, gögn og vinnubrögð.“

Segja þau Jóhann Ólafur Kristinsson, Bryndís Ernstsdóttir og Auður Björgvinsdóttir, starfsmenn mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar.

Innleiðing í áföngum

Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í janúar. Mikil vinna hefur farið í gagnavinnslu og verður innleiðingin unnin í áföngum. Fyrstu skrefin snúa meðal annars að undirbúningi gagna, yfirferð og samræmingu verkferla. Þá verða stofngögn lesin inn og yfirfarin, launaútreikningar og mannauðsferlar prófaðir og starfsfólk þjálfað í notkun kerfisins.

„Gögn borgarinnar liggja í nokkrum kerfum og því er mikilvægt að tryggja að þau séu samræmd, rétt og áreiðanleg. Jafnframt þarf að tryggja rétta launavinnslu og að breytingin gangi vel fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og starfsfólk. Laun þurfa auðvitað alltaf að vera rétt og greidd á réttum tíma, líka meðan svona stór breyting stendur yfir.“

Hverjar eru væntingarnar til Kjarna?

„Mannauðsfólk hjá Reykjavíkurborg hefur miklar væntingar til kerfisins. Starfsumhverfi mannauðsmála hefur þróast hratt og gerir kröfur um aðgengi að upplýsingum, gagnadrifna ákvarðanatöku og skilvirka þjónustu. Mannauðs- og launakerfi þarf því að vera meira en bara skráningarkerfi. Það þarf að styðja við stefnumótandi ákvarðanir og bæta notendaupplifun bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk mannauðsmála.“

Markmiðið með nýja kerfinu er að einfalda og samræma mannauðs- og launaferla, draga úr handvirkri vinnu og tvískráningu og nýta sjálfvirkar lausnir í auknum mæli. Jafnframt á að auka gæði gagna og sjálfsafgreiðslu stjórnenda og starfsfólks. Þannig skapast aukið svigrúm til að leggja áherslu á gæði, ráðgjöf, eftirlit og áframhaldandi þróun þjónustunnar.

Tæplega 800 manns munu nota kerfið í daglegri vinnu hjá Reykjavíkurborg, þar á meðal stjórnendur, mannauðsfólk og launaráðgjafar. Markmiðið er jafnframt að upplýsingar verði aðgengilegri og að stjórnendur hafi betri yfirsýn yfir mannauðs- og launaupplýsingar. Starfsfólk á að upplifa einfaldari og aðgengilegri þjónustu og geta leyst fleiri erindi sjálft, hvenær sem er og hvar sem er.

Mikilvægt umbreytingarskref

„Fyrir mannauðs- og launastarfsemi Reykjavíkurborgar er þetta því ekki aðeins nýtt kerfi heldur mikilvægt umbreytingarskref. Þetta er tækifæri til að endurhugsa verklag, einfalda ferla og nýta tæknina betur til að veita betri þjónustu og skapa meiri verðmæti.“

Með Kjarna er því verið að styrkja grunninn að gagnadrifinni, stafrænni og framtíðarmiðaðri þjónustu þar sem sjálfvirkni, skilvirkni og aukið aðgengi skapa betri upplifun fyrir bæði stjórnendur og starfsfólk. Innleiðingin er jafnframt fjárfesting í vinnuumhverfi framtíðarinnar og í því að skapa góðan vinnustað sem laðar að, styður við og eflir framúrskarandi starfsfólk.

 

Ekki missa af fréttum frá Corus

Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá sendar fréttir af nýjungum, greinar um mannauðsmál og upplýsingar um komandi viðburði.