1 min read

Morgunverðarfundur Corus: Mælingar, teymi og framtíð í mannauðstækni

Morgunverðarfundur Corus: Mælingar, teymi og framtíð í mannauðstækni

Hvernig vitum við raunverulega hvernig starfsfólkinu okkar líður, og hvað gerum við með þá vitneskju?

Corus býður mannauðsfólki og þeim sem láta sig ánægju og helgun starfsfólks varða á morgunverðarfund í nýjum höfuðstöðvum Skyggnis og Corus að Dalvegi 30a. Boðið verður upp á létta morgunhressingu.

Á fundinum fáum við innsýn í hvers vegna reglulegar mælingar á ánægju og helgun skipta máli og hvernig tryggja má að þær skili raunverulegum árangri. Við heyrum hvernig öflug teymi eru byggð upp og fáum að skyggnast inn í framtíðina, þar sem gervigreind mun gegna sífellt stærra hlutverki í mannauðsmálum.

Hvenær
Fimmtudagur 19. nóvember, kl. 8:30-10:00

Hvar
Gáttin - 3. hæð, Dalvegi 30a, Kópavogi

Aðgangur
Ókeypis, en skráning er nauðsynleg

Dagskrá

8:30  Morgunhressing og spjall

8:45  Opnun fundar
Jónatan Jónatansson, sérfræðingur í markaðs- og sölumálum hjá Corus og fundarstjóri


8:50

Mælingar sem missa ekki marks

Kristín Helga Lárusdóttir, leiðtogaráðgjafi hjá Corus

Kristín fjallar um það sem gerist eftir Moodup mælinguna: hvernig niðurstöður verða að raunverulegum breytingum, hvers vegna samtölin sem við forðumst skipta oft mestu máli og af hverju stjórnendur eru lykillinn að góðum teymum. Hún gefur hagnýt ráð um eftirfylgni sem virkar. Kristín býr að víðtækri reynslu úr mannauðsmálum og starfar í dag við leiðtogaráðgjöf hjá Corus.


9:10

Teymin sem burðarás menningar

Hrund Grétarsdóttir, verkefnastjóri fyrirtækjamenningar hjá Isavia

Hrund fjallar um mikilvægi teymisstjórnunar, hvers vegna fyrirtæki ættu að vinna markvisst með teymi og hver fyrstu skrefin í uppbyggingu þeirra eru. Hrund leiðir í dag innleiðingu nýrrar kjörmenningar Isavia sem byggir á uppbyggilegri hegðun.


9:30

Corus breytir leiknum

Brynjar Már Brynjólfsson, leiðtogi Vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus

Brynjar kynnir þá vegferð sem framundan er í Moodup og Kjarna, þar sem gervigreind verður nýtt í kerfum Corus til að umbylta mannauðsstarfi á Íslandi.


9:50  Spurningar, samantekt og fundarlok

Skráðu þig á fundinn

Við hlökkum til að taka á móti mannauðsfólki og þeim sem láta sig ánægju og helgun starfsfólks varða í nýjum höfuðstöðvum Skyggnis og Corus að Dalvegi 30a.

Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg, þar sem aðeins takmarkaður fjöldi kemst að. Skráðu þig hér fyrir neðan.

Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni

Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni

Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar mannauðslausnir eru í eigu Skyggnis...

Read More
Við kynnum CORUS til leiks!

Við kynnum CORUS til leiks!

Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt mannauðstæknifyrirtæki. Það félag hefur nú...

Read More
Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?

Liggur framtíð mannauðsstjórnunar í snjallri gagnavinnslu?

Hjá flestum fyrirtækjum búa mannauðs- og launakerfi yfir mikilvægum upplýsingum um starfsmannahópinn. Á sama tíma gefa starfsánægjumælingar dýrmætar...

Read More