2 min read
Reykjavíkurborg innleiðir Kjarna: „Stórt verkefni sem snýst um meira en nýtt kerfi“
Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í janúar. Reykjavíkurborg er einn...
Fimmtudaginn 19. nóvember hélt Corus morgunverðarfund undir yfirskriftinni Mælingar, teymi og framtíð mannauðstækni. Fundurinn fylltist á örskotsstundu og um 100 gestir komu í húsakynni okkar á Dalvegi 30A.
Frá mælingu til raunverulegra breytinga
Kristín Helga Lárusdóttir, ráðgjafi hjá Corus, fjallaði um hvað gerist eftir Moodup mælinguna og hvernig niðurstöður verða að raunverulegum breytingum. Hún ræddi líka hvers vegna samtölin sem við forðumst skipta oft mestu máli og af hverju stjórnendur eru lykillinn að góðum teymum. Gestir fóru heim með góð verkfæri til að vinna með.
Teymisstjórnun hjá Isavia
Hrund Grétarsdóttir, verkefnastjóri fyrirtækjamenningar hjá Isavia, fjallaði um mikilvægi teymisstjórnunar, hvers vegna fyrirtæki ættu að vinna markvisst með teymi og hver fyrstu skrefin eru. Það var gaman að heyra af þeim árangri sem Isavia hefur náð í sinni menningarvegferð.
Gervigreind í Moodup og Kjarna
Að lokum kynnti Brynjar Már Brynjólfsson, leiðtogi vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus, þá vegferð sem fram undan er í Moodup og Kjarna, þar sem gervigreind verður nýtt til að umbylta mannauðsstarfi á Íslandi. Við kynnum þessar nýjungar nánar í byrjun næsta árs.
Jónatan Jónatansson stýrði fundinum af myndarbrag.
Við þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sýna ykkur nýjungar í Kjarna og Moodup á næstunni.












2 min read
Reykjavíkurborg er nú að innleiða Kjarna, mannauðs- og launakerfi frá Corus, og stefnt er að fyrstu launakeyrslu í janúar. Reykjavíkurborg er einn...
1 min read
Corus vill gefa stjórnendum betri innsýn í mannauðsmál. Corus hefur á undanförnum árum byggt upp tvær lykillausnir fyrir íslenskan vinnumarkað,...
Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og launahugbúnaðinn Kjarna og...