1 min read

Árangursrík innleiðing Kjarna hjá Rarik

Árangursrík innleiðing Kjarna hjá Rarik

Rarik þurfti öflugt mannauðs- og launakerfi fyrir sínar fjölbreyttu þarfir. Kjarni reyndist vera heildstæða lausnin sem fyrirtækið var að leita að - með einfaldari innleiðingu en nokkurn óraði fyrir.

Rarik hefur tekið stór skref í mannauðs- og launamál með innleiðingu á Kjarna fyrr á þessu ári. Reynslan hefur sýnt að skilvirkni og einfaldleiki einkenna kerfið.

"Þetta var minna mál en ég bjóst við að skipta um launakerfi. Ég hafði miklað þetta aðeins fyrir mér því það er svo mikið undir en þetta var tiltölulega einfalt mál. Einfaldara en ég hafði þorað að vona,"

- Þröstur Magnússon, starfsmannastjóri Rarik, um innleiðingu á Kjarna.

Fegurðin liggur í fjölbreyttum þörfum

Rarik, með sína 200 starfsmenn, sinnir margþættu hlutverki í orkugeiranum – allt frá raforkudreifingu til sölu á heitu vatni. Slíkur rekstur krefst öflugra stjórnunartækja.

"Fegurðin í þessu eru þessir fjölbreyttu möguleikar í kerfinu. Það eru mikil þægindi fólgin í því að geta aukið skýrslugjöf og annað til stjórnenda. Það auðveldar yfirsýn yfir t.d. tímafjölda, kostnað og útborganir."

- Þröstur Magnússon, starfsmannastjóri Rarik. 

Fagleg þjónusta tryggir árangursríka innleiðingu

Ákvörðunin um að skipta um kerfi var tekin þegar ljóst var að eldra kerfið stóð ekki lengur undir kröfum fyrirtækisins.

“Við höfðum sett stefnuna á að skipta um launakerfi. Gamla kerfið fullnægði ekki kröfum og þörfum okkar lengur. Við höfum heyrt vel látið af Kjarna og fundur með Origo þar sem bæði fyrirtækið og Kjarni voru kynnt, seldu okkur hugmyndina og við slógum til,” segir Þröstur.

"Það er engin eftirsjá í þeirri ákvörðun, innleiðingin gekk mjög vel. Þau sem stóðu að þessu hjá Origo eru fagfólk fram í fingurgóma, og ef mig vantar aðstoð fæ ég hana samdægurs og þarf ekki að bíða í marga daga."

- Þröstur Magnússon, starfsmannastjóri Rarik. 

Mat og skráning á hæfni sem lykill að þjálfun og auknu öryggi

Mat og skráning á hæfni sem lykill að þjálfun og auknu öryggi

Þessi grein byggir á erindi sem Hulda Ólafsdóttir Klein, deildarstjóri upplýsingatæknideildar Norðuráls, og Magnús Smári Snorrason, fræðslustjóri...

Read More
Corus er fyrir fólkið!

Corus er fyrir fólkið!

Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og launahugbúnaðinn Kjarna og...

Read More
Ákvarðanir byggðar á gögnum: Hvað er viðskiptagreind Kjarna?

Ákvarðanir byggðar á gögnum: Hvað er viðskiptagreind Kjarna?

Hvernig nýtir þitt fyrirtæki gögn til að taka betri ákvarðanir? Fyrirtæki sem vinna markvisst með gögn eru í góðri stöðu til að taka betri...

Read More