6 min read

Frá Yatzy til Kjarna - Ævintýralegur ferill Torfa

Frá Yatzy til Kjarna - Ævintýralegur ferill Torfa

Guðmundur Torfi Gíslason ætlaði upphaflega að læra viðskiptafræði en féll fyrir forritun eftir fyrsta tímann. Síðan þá hefur Torfi verið í fararbroddi við þróun íslenskra launakerfa. Á löngum ferli hefur hann upplifað miklar tæknibreytingar, stofnað til eigin hugbúnaðarþróunar og tekist á við alvarleg veikindi. Nú er hann kominn á eftirlaun og lítur til baka á viðburðaríkan feril.

„Ég er kominn á þann aldur að menn voru ekkert að forrita ungir,“ segir Torfi þegar hann rifjar upp upphafið að löngum ferli sínum í hugbúnaðargerð. Ferillinn hófst raunar fyrir hálfgerða tilviljun en á menntaskólaárunum stóð honum til boða að velja á milli bókbands og forritunar. Hann hafði ekki hugmynd um hvað forritun var og valdi því bókband.

Það var ekki fyrr en síðar, þegar Torfi hóf nám í viðskiptafræði, sem hann kynntist forritun í fyrsta sinn og áhuginn kviknaði samstundis.

„Ég man að eftir tímann spurði ég hvort ég mætti vera lengur og endaði á að vera þarna til miðnættis. Ég féll alveg fyrir þessu,“ segir Torfi

Áhuginn varð það mikill að hann hætti í viðskiptafræðinni með það í huga að fara í tölvunarfræði. Leiðin þangað varð þó ekki bein.

Hent út í djúpu laugina á geðdeild

Um tíma starfaði Torfi á geðdeild, reynsla sem hann segir hafa haft mikil áhrif á sig og líf sitt. Hann var rúmlega tvítugur og, eins og hann lýsir því sjálfur, algjörlega óundirbúinn fyrir starfið.

„Mér var bara hent út í djúpu laugina.“

Fyrsti vinnudagurinn varð eftirminnilegur. Torfi kom auga á gamla skólasystur sína á deildinni og settist hjá henni. Þau spjölluðu saman í drjúga stund áður en þau áttuðu sig á misskilningnum en þau voru bæði starfsmenn á deildinni. Torfi hafði haldið að hún væri vistmaður og hún hafði haldið nákvæmlega það sama um hann.

Þrátt fyrir að þessi hluti starfsævinnar væri fjarri tölvuheiminum segir Torfi reynsluna hafa kennt sér mikið og haft varanleg áhrif á hann.

Fyrsta forritið var Yatzy

Það var síðan fyrir tilstilli bróður Torfa sem tölvurnar komu aftur inn í myndina. Bróðir hans starfaði hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, SÍS, og sagði honum frá lausri stöðu tölvuoperators í tölvusal. Torfi sótti um, fékk starfið og þar skrifaði hann sitt fyrsta forrit.

Það var einfaldlega Yatzy.

Forritið varð vinsælt meðal starfsfólksins, jafnvel aðeins of vinsælt. Starfsmenn gátu spilað Yatzy í stórtölvu SÍS en leikurinn tók svo mikið af vinnslugetu að setja þurfti reglur um hversu mikið mætti spila.

Þarna var ekki aftur snúið. Torfi fór í kjölfarið í TVÍ, þar sem áherslan var á forritun, og útskrifaðist þaðan.

Þegar kom að því að sækja um starf að námi loknu stóð hann frammi fyrir tveimur atvinnumöguleikum, annars vegar starfi hjá Vífilfelli og hins vegar hjá Launaskrifstofu ríkisins. Hann fór í viðtal hjá Launaskrifstofunni og var ráðinn strax í fyrsta viðtalinu.

Þar hófst kafli sem átti eftir að móta nánast allan starfsferil hans: launakerfin.

H-laun verða til

Hjá Launaskrifstofu ríkisins lærði Torfi allt um launavinnslu. Þaðan lá leiðin yfir í Tölvumiðlun og þar varð til H-laun, fyrsta launakerfið sem hann skrifaði.

Kerfið var tilbúið á innan við ári og Torfi skrifaði það sjálfur, með góða ráðgjafa sér við hlið. Forritunarumhverfið var gjörólíkt því sem hugbúnaðarfólk þekkir í dag. Kerfið var skrifað í C og gögnin geymd í C-tree gagnagrunni. SQL kynntist Torfi ekki fyrr en löngu síðar.

„Ég kynntist ekkert SQL fyrr en ég kom í SAP og þá var ég orðinn fertugur. Ég var búinn að vera í gamla heiminum. Þetta var bara allt annar heimur en er í dag,“ segir Torfi.

Á þessum tíma var ekki hægt að dreifa hugbúnaði með þeim hætti sem við þekkjum í dag. Launafulltrúar voru með kerfið og gögnin hjá sér og þegar ný útgáfa kom þurfti að setja hana á diska og senda viðskiptavinum í pósti.

Viðskiptavinirnir voru á annað hundrað og því gat ein villa orðið ansi dýrkeypt.

Eitt sinn var búið að senda alla diskana af stað þegar Torfi áttaði sig á því að villa var í kerfinu. Þá þurfti að stöðva póstsendinguna, laga villuna, útbúa diskana aftur og hefja ferlið upp á nýtt.

„Þannig var bara ferlið á þeim tíma.“

Með tölvuna í Akraborginni

Innleiðingar voru heldur ekki framkvæmdar í gegnum fjarfundi eða nettengingar. Stundum þurfti Torfi einfaldlega að taka tölvuna með sér og mæta á staðinn.

Ein eftirminnilegasta innleiðingin var á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Torfi fór með Akraborginni yfir Faxaflóa með tölvuna með sér, vann fram á nótt og fékk að gista á sjúkrahúsinu.

„Ég fékk herbergi á heimavistinni þar sem hjúkrunarfræðingarnir og sjúkraliðarnir gistu. Svo fór ég bara heim með Akraborginni daginn eftir með tölvuna undir hendinni.“

Vildi eignast eitthvað í því sem hann skapaði

Eftir um tíu ár hjá Tölvumiðlun fór Torfi að finna fyrir þörf fyrir breytingar. Hann vildi eiga eitthvað sjálfur í þeim kerfum sem hann var að skapa. Hann sagði því upp og hófst handa við að smíða eigin launareiknivél.

Hugmyndin var að reiknivélin yrði sjálfstæð og hægt væri að tengja hana við ólík kerfi. Þróunin tók um ár og þegar tæknivinnan var búin tók við verkefni sem var Torfa framandi: að selja lausnina.

Hann byrjaði ekki smátt heldur hafði samband við Reykjavíkurborg og fékk fund.

Á leiðinni á fundinn sat hann í leigubíl og í útvarpinu hljómaði Helgi Björnsson með skilaboð sem Torfi tók til sín: Farðu alla leið.

Fundurinn gekk vonum framar. Reykjavíkurborg var þó nýbúin að skrifa undir annan samning og gat því ekki tekið lausnina inn. Þar var honum hins vegar bent á að ræða við Nýherja.

Það reyndist vendipunktur.

„Á fundinum fann ég strax að þeir væru að fara að kaupa þetta. Ég var bara ráðinn á staðnum og það var allt ákveðið á fyrsta fundi,“ segir Torfi.

Lausnin hafði mikilvægan kost. Fyrirtæki sem notuðu SAP þurftu ekki að reka sérstakt launakerfi heldur gátu þau nýtt SAP með launakerfi sem var lagað að íslenskum aðstæðum.

Eftir átta mánaða þróunarvinnu með Nýherja var SAP-launakerfið tilbúið til sölu. Fyrsti viðskiptavinurinn var Pósturinn og um var að ræða stóra sölu.

En einmitt á þeim tíma sem allt var á mikilli siglingu tók líf Torfa skyndilega aðra stefnu.

Hélt að hann væri að deyja

Við innleiðinguna hjá Póstinum var álagið gríðarlegt og hafði það mikil áhrif á Torfa.

„Það var allt á fullu og allt í stressi. Ég dett niður á gólfið og segi: Ég er að deyja. Ég var alveg máttlaus en náði svo að standa upp,“ útskýrir hann.

Í ljós kom að æðagúll í heila Torfa hafði sprungið og var hann í kjölfarið lagður inn á gjörgæslu í um viku og gekkst undir heilaaðgerð.

Þótt það kunni að hljóma einkennilega segir hann að dvölinni á gjörgæslunni hafi á vissan hátt fylgt ákveðinn léttir. Eftir langt tímabil mikils álags og streitu neyddist hann loksins til að stoppa.

Aðeins mánuði síðar var hann þó mættur aftur til vinnu hjá Nýherja, með rakað hárið öðrum megin og skurð eftir aðgerðina. Hann minnist þess meðal annars hversu þakklátur hann var fyrir að hafa fengið greidd laun þann mánuð sem hann var frá vinnu.

Kjarni verður til heima á kvöldin

Eftir efnahagshrunið sá Torfi nýtt tækifæri. Honum fannst þau launakerfi sem fyrir voru ekki geta þróast nægilega með þeim breytingum sem höfðu orðið í samfélaginu.

Á þessum tíma var þó ekki stuðningur innan fyrirtækisins við þróun á nýju launakerfi.

Torfi ákvað því að fara sína eigin leið og hann hóf að smíða nýtt kerfi heima hjá sér á kvöldin og um helgar. Það kerfi varð síðar það sem við þekkjum sem Kjarna.

Hugmyndin var að taka það besta úr reynslunni sem hann hafði safnað. H-laun höfðu meðal annars skort öflugt starfsmannakerfi en SAP var orðið þungt og flókið í notkun. Kjarni byggði að miklu leyti á þeirri þekkingu sem Torfi hafði öðlast í SAP-heiminum, samhliða reynslunni af fyrri kerfum.

Fyrsti viðskiptavinur Kjarna var Landsvirkjun. Eftir góða kynningu, þrátt fyrir að lausnin hafi ekki verið tilbúin, tókst að selja kerfið og eftir það fór boltinn að rúlla.

Frá bókum til gervigreindar

Á löngum ferli hefur Torfi séð forritun og hugbúnaðargerð taka gríðarlegum breytingum. Það væri auðvelt að ætla að forritun yrði einfaldari eftir því sem tækninni fleygir fram, en hans reynsla er ekki alveg sú.

Kröfurnar hafa aukist samhliða tækninni. Vinnuferlar eru vissulega orðnir mun einfaldari og starfið faglegra, en verkefnin um leið flóknari.

Áður fyrr gat ein villa þýtt að Torfi þyrfti sjálfur að fara til viðskiptavinarins til að laga vandamálið. Hann rifjar upp með kímni að á tímabili hafi hann verið svo mikið á ferðinni vegna launakerfanna að þegar hann gekk um miðbæinn hafi konur úr launadeildum fyrirtækja verið farnar að heilsa honum út um allt.

Nú er enn ein stór tæknibylting hafin. Torfi fylgist af áhuga með því hvernig gervigreind mun breyta forritun og nýtir hana sjálfur í ýmsum gæluverkefnum.

Hann sér ákveðna samsvörun á milli þess hvernig forritarar öfluðu sér þekkingar áður fyrr og þeirra möguleika sem gervigreind býður upp á í dag.

Á sínum tíma sótti hann þekkingu í bækur, skoðaði hvað virkaði vel í öðrum kerfum og nýtti þá þekkingu við eigin hugbúnaðargerð. Í dag getur gervigreind sótt og unnið úr gríðarlegu magni upplýsinga á örskömmum tíma.

Aðferðin er að einhverju leyti sú sama, að hans mati, en umfangið og hraðinn allt annar.

Að skilja eitthvað eftir sig

Þegar Torfi lítur yfir ferilinn eru það ekki aðeins forritin sjálf sem standa upp úr heldur fólkið sem notaði þau. Viðskiptavinirnir og samskiptin við þá skipa stóran sess í minningunum.

Einnig er gaman að nefna að þó Reykjavíkurborg hafi ekki fjárfest í launareiknivél Torfa á sínum tíma þá hafa þau í raun keypt hana í tvígang eftir það, fyrst sem hluta af SAP launum og aftur fyrr á þessu ári sem hluta af Kjarna.

Nú er Torfi að hætta störfum og fara á eftirlaun. Þegar hann lítur til baka er hann fyrst og fremst þakklátur fyrir að hafa á mikilvægum augnablikum treyst eigin innsæi og farið sínar eigin leiðir. Það gerir honum kleift að ljúka starfsferlinum með þá tilfinningu að hafa skapað eitthvað sem lifir áfram og því segist hann geta verið stoltur af.

Og eitt persónulegt fingrafar hans lifir áfram: Kjarni ber nafnið sem hann valdi sjálfur.

 

 

 

Ekki missa af fréttum frá Corus

Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá sendar fréttir af nýjungum, greinar um mannauðsmál og upplýsingar um komandi viðburði.