Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni
Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar mannauðslausnir eru í eigu Skyggnis...
Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt mannauðstæknifyrirtæki. Það félag hefur nú hlotið nafnið CORUS ehf.
Tilgangur CORUS ehf. er að bjóða íslenskum fyrirtækjum og stofnunum traustan samstarfsaðila fyrir öll mannauðs- og launamál.
Hið nýja félag, CORUS ehf., mun taka formlega til starfa þann 1. janúar 2026 og við það tímamark flyst öll þjónusta Kjarna mannauðs- og launalausna yfir í hið nýja félag. Þar undir falla allir samningar við núverandi viðskiptavini Kjarna.
Kennitala Corus byggir á kennitölu Moodup. Því verður ekki breyting á samningsaðila eða þjónustuveitanda Moodup, nema sú breyting að Moodup er hér eftir hugbúnaðarlausn frá Corus.
Á vef Corus er hægt að nálgast upplýsingar um lausnir okkar – Kjarna, Moodup og Rúnu.
Origo kynnti á dögunum fyrirhugaða sameiningu Kjarna, mannauðs- og launalausna Origo og Moodup, en þessar mannauðslausnir eru í eigu Skyggnis...
Skýrsla KPMG sýnir fram á umhverfislegan og fjárhagslegan ábata af innleiðingu mannauðs- og launakerfi Kjarna.
Birkir Svan Ólafsson, mannauðssérfræðingur hjá Kviku fer yfir ávinninginn af viðskiptagreind Kjarna og deilir hagnýtum ráðum sem geta hjálpað þér að...