Stefnu þessari er ætlað að upplýsa notendur vefsíðna sem tilheyra Corus um hvaða vafrakökur við notum og í hvaða tilgangi.
Vafrakökur, dílar (e. pixels) og aðrar sambærilegar viðbætur (sameiginlega vísað til „vafrakaka“) eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á tölvum eða öðrum snjalltækjum notanda þegar vefsíða er heimsótt. Vafrakökurnar er hægt að nýta í mismunandi tilgangi, t.d. til þess að tryggja eðlilega virkni vefsíðu, muna stillingar notanda (s.s. hvaða tungumál eða gjaldmiðil skal birta) og birta vörur og þjónustu sem viðkomandi notandi er líklegur til að hafa áhuga á.
Corus notast við mismunandi vafrakökur með ólíka virkni til að tryggja að þjónusta við notendur sé sem best. Vafrakökurnar sem við notum má flokka með með eftirfarandi hætti:
Nauðsynlegar kökur (e. Necessary cookies)
Nauðsynlegar kökur eru notaðar til þess að vefsíður okkar hafi eðlilega virkni. Slíkar vafrakökur eru ekki notaðar til að skrá niður persónuupplýsingar eða aðgerðir notenda á öðrum vefsíðum. Vefsíður okkar munu ekki virka rétt án þeirra og því er ekki hægt að hafna þeim.
Stillingarkökur (e. Preference cookies)
Stillingarkökur gera vefsíðum okkar kleift að muna upplýsingar eða aðgerðir notenda svo hægt sé að stjórna því hvernig vefsíða lítur út eða hegðar sér fyrir hvern notanda. Slíkar vafrakökur skrá til dæmis niður gjaldmiðil, landsvæði, tungumál eða litaþema sem notandi velur. Notkun þeirra er háð samþykki notenda.
Tölfræðikökur (e. Analytical cookies)
Tölfræðikökur eru nauðsynlegar til að safna tölfræðiupplýsingum um hvernig vefsíður okkar eru notaðar, greina vandamál sem kunna að koma upp og safna upplýsingum um hvernig hægt er að þróa vefsíður okkar í samræmi við virkni notenda. Upplýsingum sem slíkar vafrakökur safna eru í langflestum tilvikum órekjanlegar tölfræðiupplýsingar en upplýsingarnar kunna þó einnig að vera rekjanlegar til einstaklinga. Notkun þeirra er háð samþykki notenda.
Markaðskökur (e. Marketing cookies)
Markaðskökur eru notaðar til þess að skrá niður aðgerðir notenda á mismunandi vefsíðum utan þeirra vefsíðna Corus sem notendur okkar heimsækja og gerir okkur kleift að birta einstaklingum sérsniðnar auglýsingar. Notkun þeirra er háð samþykki notenda. Notkun okkar á vafrakökum er mismunandi eftir því hvaða vefsíðu um ræðir.
Upplýsingar sem vafrakökur safna eru einungis notaðar í þeim tilgangi að þróa og auka gæði þeirrar þjónustu sem vefsíður okkar bjóða upp á. Vafrakökur safna upplýsingum um hvern og einn notanda sem veita okkur innsýn í þarfir og virkni hans, sem við notum til þess að sérsníða þjónustu okkar að þörfum viðkomandi. Slíkt felur í sér vinnslu á tölfræði- og persónuupplýsingum um notandann og fer aldrei fram nema með fyrirframgefnu samþykki viðkomandi. Mikilvægt er að notendur kynni sér virkni á bakvið mismunandi vafrakökur áður en samþykki er veitt.
Greinamunur er gerður á setukökum og viðvarandi vafrakökum. Setukökur eyðast almennt um leið og notendur yfirgefa vefsíðuna og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu eða annan búnað sem notaður er til að heimsækja vefsíðuna og eru til þess gerðar að muna aðgerðir eða val viðkomandi. Viðvarandi vafrakökur vistast til lengri tíma.
Notendur geta stýrt vafrakökunotkun á vefsíðum okkar með eftirfarandi hætti:
Hægt er að stilla noktun á vafrakökum þegar vefsíða er heimsótt í fyrsta skipti. Hafi notandi samþykkt vafrakökur getur hann afturkallað samþykki sitt hvenær sem er með því að senda póst á corus@corus.is.
Upplýsingar um hvernig stilla má vafrakökur á mismunandi vöfrum má finna hér.
Vafrakökustefna þessi getur tekið breytingum í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum. Að auki er mögulegt að Corus notist í framtíðinni við aðrar vafrakökur en nú er gert. Notendur verða upplýstir um notkun á nýjum vafrakökum á vefsíðum okkar og óskað verður eftir samþykki fyrir notkun þeirra, eftir því sem við á.