Það var frábær stemning á Hótel Grand í gær, 5. maí, þegar vorráðstefna Corus, Mannauður í mótun, fór fram.
Á ráðstefnunni kom saman fjöldi fagfólks í mannauðsmálum til að fara yfir þróun, áskoranir og tækifæri í síbreytilegu starfsumhverfi. Dagskráin var fjölbreytt en hún byggði á raunverulegum dæmum úr íslensku atvinnulífi ásamt innsýn frá sérfræðingum.
Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Corus, opnaði ráðstefnuna og kynnti vegferð félagsins. Corus varð til við sameiningu Kjarna, Moodup og Rúnu og býður upp á heildræna sýn á mannauðs- og launamál ásamt öflugri ráðgjöf. Markmiðið er að veita fyrirtækjum tæki og tól til að ná árangri í gegnum samspil gagna og sérfræðiþekkingar.
Samstaða þegar mest á reynir
Ægir Viktorsson, forstöðumaður ráðninga og mannauðsráðgjafar hjá Bláa Lóninu deildi reynslu sinni af mannauðsvegferð Bláa Lónsins og hvernig skipulag sviðsins var endurhugsað til að styðja við öran vöxt. Hann fór yfir hvernig markviss uppbygging, gagnadrifin ákvarðanataka og innleiðing nýrra tæknilausna hafa breytt rekstrinum og gert stjórnendum kleift að taka upplýstari ákvarðanir í rauntíma.
Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi samstöðu, skýrrar upplýsingagjafar og teymisvinnu þegar mest á reynir, sérstaklega í ljósi þeirra áskorana sem skapast hafa hjá fyrirtækinu vegna jarðhræringa á Reykjanesi.
Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri Isavia, sýndi hvernig fyrirtækið nýtir Kjarna sem miðlæga uppsprettu gagna sem talar við fjölmörg önnur kerfi fyrirtækisins, allt frá aðgangsstýringu til innkaupastýringar. Hann útskýrði hvernig þessi tenging einfaldar ferla og gerir mannauðskerfið að öflugri gagnaveitu fyrir reksturinn.
Þá gaf Brynjar áhugaverða og skemmtilega innsýn í hvernig hann hefur verið að nýta gervigreind til að leysa flóknar áskoranir í daglegu starfi. Hann sýndi frá því hvernig hann hefur verið að þróa lausnir til að sjálfvirknivæða ferla og gera samstarfsfólk sitt sjálfbjarga, sem sparar tíma og eykur skilvirkni teyma.
Eva Demireva, mannauðsstjóri Syndis og Guðrún Valdís Jónsdóttir, forstöðumaður ráðgjafasviðs Syndis, ræddu um mikilvægi þess að halda vel utan um mannauðsgögn, en þau eru meðal viðkvæmustu upplýsinga fyrirtækja. Þær vöktu ráðstefnugesti einnig til umhugsunar um að vanda þurfi til verka við meðferð þessara gagna.
Í erindinu fóru þær yfir hlutverk mannauðsfólks í að skapa heilbrigða og jákvæða öryggismenningu og lögðu þær sérstaka áherslu á að aukin notkun gervigreindar kallar á skýrt verklag og fræðslu svo nýta megi tæknina á ábyrgan og öruggan hátt.
Halla Árnadóttir, vöru- og teymisstjóri Corus, fór yfir þróun Kjarna og þær spennandi nýjungar sem framundan eru. Meðal þess sem hún kynnti var endurbætt stjórnendaviðmót, ný vaktaplön og enn meiri áhersla á veflausnir, allt með það að markmiði að auka sjálfvirkni og einfalda daglegt starf mannauðs- og launateyma.
Hún varpaði einnig ljósi á framtíðarsýn þar sem gervigreind mun leika stórt hlutverk og skapa ný tækifæri. Framtíðin felst meðal annars í því að gera notendum kleift að spyrja kerfið beinna spurninga um stöðu mannauðsmála, sem mun gjörbylta því hvernig unnið er með upplýsingar úr kerfinu.
Davíð Tómas Tómasson, sem er yfir vexti og sölu hjá Corus, lokaði ráðstefnunni með erindi um "helgunarkreppuna" á vinnumarkaði og mikilvægi stjórnenda fyrir starfsánægju og tryggð. Hann benti á að næsti yfirmaður sé mikilvægasta breytan í starfsumhverfinu og að gæði stjórnunar hafi afgerandi áhrif á upplifun starfsfólks af vinnustaðnum.
Davíð lagði áherslu á að markviss endurgjöf, traust og skýrar væntingar séu lykilþættir í árangursríkri stjórnun. Einnig kom hann inn á nýja ráðgjafarþjónustu Corus, sem nýtir gögn úr Moodup til að styðja við betri stjórnendaþjálfun og brúar þannig bilið á milli mælinga og umbóta.
Við viljum þakka fyrirlesurum og gestum kærlega fyrir vel heppnaðan dag. Áframhaldandi þróun í mannauðsmálum kallar á opið samtal, samvinnu og nýjar nálganir og við hjá Corus hlökkum til að halda þeirri vegferð áfram með ykkur öllum.