Júní útgáfa Kjarna er komin út með fjölda nýjunga sem einfalda daglegt starf og bæta upplifun notenda. Meðal stærstu nýjunga er myndrænt skipurit á Kjarnavef, matseðill dagsins í snjallforriti og nýr öryggiseiginleiki í ráðningum.
Notendur geta nú séð skipurit fyrirtækisins á sjónrænan hátt í vefviðmóti Kjarna, leitað að einstaklingum og grafið sig upp eða niður í skipuritinu, svipað og þekkist úr Microsoft Teams. Beint úr skipuritinu er hægt að stofna og viðhalda fyrirtækjum, skipulagseiningum og stöðum, sem einfaldar daglega umsýslu til muna.
Starfsfólk getur nú skoðað matseðil dagsins og komandi daga beint í snjallforriti Kjarna. Hægt er að tengja mismunandi matseðla við mismunandi mötuneyti og ef kveikt er á skráningu í mat getur starfsfólk skráð sig beint úr matseðlinum. Snjallforritið man hvaða mötuneyti starfsmaður hefur valið, svo upplifunin er einföld og þægileg.
Nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á launavinnslu:
· Nýtt athugasemdasvæði í launaskráningu gerir notendum kleift að skrá texta við einstakar launalínur.
· Birting álags á launaseðlum hefur verið bætt.
· Villuboð við útreikninga eru skýrari en áður.
· Hægt er að slökkva á kostnaðarskiptingu niður á verk í launasamþykkt hjá þeim viðskiptavinum sem þurfa á því að halda.
Starfsfólk sem gegnir fleiru en einu starfi greiðir almennt í sama séreignarsjóðinn. Á nýju spjaldi er nú hægt að skrá séreignarsjóðinn á einum stað og láta það gilda fyrir öll störf starfsmannsins - þægilegra, fljótlegra og án tvískráningar.
Frammistöðumat á Kjarnavef hefur verið endurbætt enn frekar:
· Nú er hægt að tengja frammistöðumat við heilt fyrirtæki, nokkrar skipulagseiningar eða allar í einu, í stað þess að þurfa að tengja hvert og eitt sérstaklega.
· Framkvæmdaraðili erfist sjálfkrafa af skipulagseiningu, sem dregur úr handvirkri vinnu.
· Aðgangsstýringu fyrir framkvæmdaraðila sem eru ekki yfirmenn hefur verið bætt við.
Viðverukerfið hefur fengið nokkrar mikilvægar endurbætur:
· Nú er hægt að taka tímaútreikninga út í Excel, bæði fyrir einn starfsmann og alla.
· Stuðningur við Yfirvinnu 1 og Yfirvinnu 2 hefur verið bættur til að mæta þörfum viðskiptavina sem þurfa mismunandi yfirvinnureglur.
· Nú er hægt að stilla kerfið þannig að yfirvinna reiknist ekki fyrr en fullri vinnuskyldu hefur verið náð - mikilvæg breyting fyrir hlutastarfsfólk.
Nú er hægt að merkja umsækjendur með viðvörunarfána þegar ástæða er til að gæta varúðar í ráðningarferlinu. Merkingin birtist í öllum viðeigandi listum og yfirlitum og tekur tillit til persónuverndar með gildistíma. Almennri leit hefur einnig verið bætt við umsóknalista.
· Breytingar á vinnufyrirkomulagi í Kjarna uppfæri vinnuskyldu í MTP. Hingað til hefur sjálfgefin vinnuskylda farið yfir í MTP við stofnun starfsmanns. Nú er komin leið til að mappa þetta saman á milli kerfanna út frá vinnufyrirkomulaginu - dagvinnu, tímavinnu eða vaktavinnu - svo starfsmaðurinn lendir á réttri vinnuskyldu strax.
· Flytja launafjárhæðir í MTP beint úr launatöflunni. Nýr hnappur, „Flytja launafjárhæðir í MTP“, er nú aðgengilegur í launatöflum. Hnappurinn kallar fram skýrsluna svo notendur geti yfirfarið fjárhæðirnar áður en þær eru sendar.
· Endadagsetning fylgir vinnuskyldu strax. Þegar starfsmaður er stofnaður með tímabundinni ráðningu fer lokadagsetningin nú beint yfir í MTP við stofnun.
· Skýr melding þegar starfsmaður er læstur í MTP. Ef reynt er að vista gögn á starfsmann eða tímabil sem er læst í MTP kemur melding um það í Kjarna.
· Lagfæring: starfsmaður stofnaðist tvisvar sem notandi í MTP ef tvær færslur voru stofnaðar í TIF í sömu aðgerð. Þetta hefur nú verið lagfært svo hann stofnast bara einu sinni.
Ýmsar smærri en þægilegar viðbætur eru einnig hluti af júní útgáfunni. Má þar nefna:
· Hætt starfsfólk er nú litakóðað í starfsmanna- og launamannatré.
· Spjöld sem eru ekki með upplýsingar eru sérstaklega aðgreind svo notendur sjái strax stöðu mála.
· Athugasemdasvæði hefur verið bætt inn í fjölda starfsmannaspjalda til að auðvelda skráningu og samskipti.
· Swagger skjölun hefur verið útvíkkuð og gefur viðskiptavinum greiðari aðgang að API-skjölun.
· Villuskilaboð frá viðskiptabönkum í launagreiðslum hafa verið bætt til muna.
· Nýr endapunktur hefur verið útfærður fyrir Gagnalón Sambands íslenskra sveitarfélaga.