Corus býður mannauðsfólki og þeim sem láta sig ánægju og helgun starfsfólks varða á morgunverðarfund í nýjum höfuðstöðvum Skyggnis og Corus að Dalvegi 30a. Boðið verður upp á létta morgunhressingu.
Á fundinum fáum við innsýn í hvers vegna reglulegar mælingar á ánægju og helgun skipta máli og hvernig tryggja má að þær skili raunverulegum árangri. Við heyrum hvernig öflug teymi eru byggð upp og fáum að skyggnast inn í framtíðina, þar sem gervigreind mun gegna sífellt stærra hlutverki í mannauðsmálum.
Hvenær
Fimmtudagur 19. nóvember, kl. 8:30-10:00
Hvar
Gáttin - 3. hæð, Dalvegi 30a, Kópavogi
Aðgangur
Ókeypis, en skráning er nauðsynleg
8:30 Morgunhressing og spjall
8:45 Opnun fundar
Jónatan Jónatansson, sérfræðingur í markaðs- og sölumálum hjá Corus og fundarstjóri
8:50
Kristín Helga Lárusdóttir, leiðtogaráðgjafi hjá Corus
Kristín fjallar um það sem gerist eftir Moodup mælinguna: hvernig niðurstöður verða að raunverulegum breytingum, hvers vegna samtölin sem við forðumst skipta oft mestu máli og af hverju stjórnendur eru lykillinn að góðum teymum. Hún gefur hagnýt ráð um eftirfylgni sem virkar. Kristín býr að víðtækri reynslu úr mannauðsmálum og starfar í dag við leiðtogaráðgjöf hjá Corus.
9:10
Hrund Grétarsdóttir, verkefnastjóri fyrirtækjamenningar hjá Isavia
Hrund fjallar um mikilvægi teymisstjórnunar, hvers vegna fyrirtæki ættu að vinna markvisst með teymi og hver fyrstu skrefin í uppbyggingu þeirra eru. Hrund leiðir í dag innleiðingu nýrrar kjörmenningar Isavia sem byggir á uppbyggilegri hegðun.
9:30
Brynjar Már Brynjólfsson, leiðtogi Vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus
Brynjar kynnir þá vegferð sem framundan er í Moodup og Kjarna, þar sem gervigreind verður nýtt í kerfum Corus til að umbylta mannauðsstarfi á Íslandi.
9:50 Spurningar, samantekt og fundarlok
Við hlökkum til að taka á móti mannauðsfólki og þeim sem láta sig ánægju og helgun starfsfólks varða í nýjum höfuðstöðvum Skyggnis og Corus að Dalvegi 30a.
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg, þar sem aðeins takmarkaður fjöldi kemst að. Skráðu þig hér fyrir neðan.