Greinar og fréttir

Nóvember útgáfa Kjarna: Minni handavinna, meiri sjálfvirkni

Written by Corus | 10.11.2026, 14:28

Hlutverk okkar hjá Corus er að styðja mannauðsfólk, launateymi og stjórnendur með öflugum lausnum og ráðgjöf sem skilar árangri. Í nóvember útgáfu Kjarna fækkum við handvirkum skrefum og eflum tengingar við önnur kerfi.

Launafærslur skiptast nú sjálfkrafa á kostnaðarstöðvar, upplýsingar um starfsfólk sækjast beint úr Þjóðskrá og Kjarni tengist Microsoft Entra ID (Azure AD). Þú eyðir minni tíma í skráningar og meiri tíma í fólkið.

Hér fyrir neðan er samantekt á því helsta. Allar nánari upplýsingar má finna í útgáfuhandbókinni okkar.

Ráðningar og starfsmannaferlar

Bein tenging við þjóðskrá á Kjarnavef

Þjóðskrártengingin hefur hingað til aðeins verið aðgengileg í biðlara (client) en er nú einnig komin á Kjarnavefinn.

  • Sjálfvirk útfylling. Þegar starfsmaður er stofnaður frá grunni í starfsmannaferlum og kennitala er slegin inn fyllast nafn, kyn, lögheimili, aðsetur, póstnúmer og þjóðerni út sjálfkrafa.

  • Hnappurinn „Sækja úr Þjóðskrá“. Er nú að finna í ráðningarferlum, tilfærslum, endurráðningum og ráðningu í annað starf, auk upplýsingasíðu starfsmanns og yfirlitssíðu umsækjanda. Með einum smelli eru gögnin uppfærð. Aðsetur sem er skráð sérstaklega er látið óhreyft.

Hnappurinn "Sækja úr þjóðskrá" uppfærir upplýsingar umsækjanda með einum smelli.

 

Umsóknir og umsækjendur

  • Handstofnun umsækjanda: Nú er hægt að stofna umsækjanda og umsókn beint úr listanum Umsóknir, t.d. þegar sótt er um eftir að umsóknarfresti lýkur.

  • Margfaldar umsóknir: Umsækjandi sem hefur sótt oftar en einu sinni um sama starf fær sérstaka merkingu og umsóknirnar eru flokkaðar saman. Aðeins ein umsókn telur í tölfræði ráðninga.

Margfaldar umsóknir eru flokkaðar saman og merktar.

 

Starfsmannaferlar

  • Vinnufyrirkomulag: Nýtt svæði, Vinnufyrirkomulag, er komið í kaflann Vinnutími í starfsmanna- og ráðningarferlum. Þar má skilgreina hvort starfsmaður vinni dagvinnu, tímavinnu eða vaktavinnu.

  • Starfslokaferli: Í starfslokaferlinu er nú hægt að velja á milli starfsloka, starfslokasamnings og uppsagnarfrests og skrá þetta strax í sama ferli, en ekki eingöngu hættur færslu eins og áður.

Í starfslokaferli er valið á milli starfsloka, starfslokasamnings og uppsagnarfrests.

 

Tenging við Azure AD

AD tengingin í Kjarna styður nú einnig Microsoft Entra ID (Azure AD), ekki aðeins LDAP, með sömu virkni og fyrri útfærsla.

  • Stofnun: Starfsfólk sem stofnað er í Kjarna stofnast sjálfkrafa í Azure AD.

  • Uppfærslur: Breytingar í Kjarna uppfærast í Azure AD.

  • Starfslok: Starfsmaður sem merktur er hættur í Kjarna er óvirkjaður í Azure AD.

  • Gögn til Kjarna: Kjarni tekur við gildum á borð við notendanafn og netfang frá Azure AD.

Rafrænar undirritanir

Uppsetning samninga í rafrænum undirritunum er nú fljótlegri og sveigjanlegri.

  • Afrita sniðmát: Hægt er að afrita fyrirliggjandi sniðmát í stað þess að smíða nýtt frá grunni.

  • Ný „mail merge“ svæði: Grunnlaunaflokkur, Vinnufyrirkomulag (úr vinnutímaspjaldi) og Tímastjóri hafa bæst við þau gildi sem hægt er að setja í sniðmát.

  • Aðgangar niður á fyrirtæki: Samstæður með mörg fyrirtæki geta nú tengt mismunandi aðganga hjá Taktikal eða Dokobit við einstök fyrirtæki.

Hægt er að afrita fyrirliggjandi sniðmát í stað þess að smíða nýtt frá grunni.

 

Laun

Margskonar virkni hefur verið bætt við launahlutann í Kjarna til að einfalda störf notenda. Mörg þessi atriði eru sérstaklega til þægindarauka fyrir notendur sveitarfélaga í Kjarna.

  • Fjárhæð sótt í grunnlaunaflokk: Nýtt hak á launatöflu lætur launalið sækja fjárhæð út frá grunnlaunaflokki í stað launaflokks, t.d. þegar starfsmaður er með aukaflokka.
  • Grunnlaunaflokkur á starfi: Grunnlaunaflokk má nú skrá á starf og hann erfist sjálfkrafa inn á grunnlaunaspjald starfsmanns við stofnun.
  • Reikniliðir á starfi: Hægt er að skrá reikniliði og reiknihópa á starf, sem reiknast þá hjá öllum sem gegna því starfi.
  • Fagaldur: Ný stilling opnar á starfsaldur og lífaldur í hækkunarreglum á launatöflum sem reiknast til fagaldurs.
  • Kostnaðarskipting: Ný aðgerð skiptir launafærslum í útborgun niður á kostnaðarstöðvar í sömu hlutföllum og mánaðarlaun starfsmanns skiptast í föstum liðum. Þetta á t.d. við um styrki og uppbætur, sem fara þá ekki lengur allar á aðallaunamannanúmer starfsmanns.
  • Leiðrétting launa: Hægt er að láta reikniliði sleppa færslum sem verða til við leiðréttingu launa, sem kemur í veg fyrir óþarfa núllfærslur.
  • Helluvalmynd launa föst: Flipinn hefur verið festur fremst svo hann hverfi ekki þegar margir gluggar eru opnir. Einnig er hægt að smella á pinnan í öðrum gluggum til að festa þá, ef þess er óskað.
  • Útborgunartré: Nýjum valkostum hefur verið bætt við til að sprengja út núverandi ár og sprengja út opnar útborganir.

Viðvera og orlof

  • Vetrarafsláttur: Kerfið styður nú vetrarafslátt af orlofi skv. kjarasamningum. Þegar orlof er tekið yfir veturinn dregst minna frá orlofsstöðu en sem nemur skráðum tímum og afslátturinn sést beint í tímaskráningu.
  • Aðfanga- og gamlársdagur: Fjarveruskráning (orlof og veikindi) á 24. og 31. desember tekur nú mið af reiknaðri vinnuskyldu, þ.e. hálfum vinnudegi. Ný stilling leyfir að líta á dagana sem lokaða frídaga án vinnuskyldu.
  • Frávik frá tímabilum: Nú er mögulegt að skrá frávik frá tímabilum ef t.d. stytta á tímabil um jól.
  • Tímaútreikningur á vef: Nýjar síur á starfsmann, skipulagseiningu og stöðu, röðun dálka og leit eftir launamannanúmeri.

 

Vetrarafslátturinn sést beint í tímaskráningu þegar orlof er tekið yfir veturinn.

 

Önnur hagnýt atriði

  • Teymið mitt: Yfirmaður sem er stjórnandi í fleiri en einu fyrirtæki innan samstæðu sér nú undirmenn sína úr öllum fyrirtækjunum.
  • Samþykkjandi dagpeninga: Hægt er að skilgreina sérstakan samþykkjanda dagpeningabeiðna á skipulagseiningu og yfirskrifa hann niður á starfsmann, ef hann á að vera annar en næsti yfirmaður.
  • Leit eftir launamannanúmeri: Í starfsmanna- og launamannatré má leita beint eftir launamannanúmeri með því að setja semíkommu á undan, t.d. ;2291.
  • Betri nafnaleit: Leit í starfsmannatré skilar nú fyrst þeim sem byrja á leitarorðinu í stað allra sem innihalda það. Einnig er hægt að nýta * í leitinni ef t.d. er leitað að millinafni eða eftirnafni.

Hvað er framundan?

Næsta útgáfa Kjarna er áætluð í febrúar. Þar kynnum við nýjungar sem byggja á gervigreind, ásamt nýjum og endurbættum Kjarnavef þar sem núverandi vefir sameinast í einn með stórbættu notendaviðmóti. Við hlökkum til að segja þér nánar frá því þegar nær dregur.

Corus leiðir framþróun í mannauðs- og launamálum með tækni og ráðgjöf sem eykur vellíðan og árangur á íslenskum vinnustöðum.