Greinar og fréttir

Allt er hægt bara ef þú trúir á það: Hvernig Isavia nýtir gögn og gervigreind í mannauðsmálum

Written by Corus | 18.5.2026 13:01

"Það er nánast allt hægt í dag." Þannig hóf Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðssérfræðingur Isavia, erindi sitt á vorráðstefnu Corus þar sem hann fór yfir hvernig Isavia hefur nýtt mannauðskerfi, sjálfvirkni og gervigreind til að einfalda ferla og styðja við daglegan rekstur.

Erindið var bæði hagnýtt og hvetjandi og sýndi vel hvernig forvitni og vilji til að prófa nýja tækni og leiðir getur skapað virði.

 

"Við tengjum fyrirtækið í gegnum Kjarna"

Hjá Isavia hefur verið markvisst unnið að því síðustu ár að nýta Kjarna sem miðlæga uppsprettu gagna fyrir önnur kerfi fyrirtækisins. Brynjar kom með skemmtilega samlíkingu:

"Tilgangur Isavia er að tengja heiminn í gegnum Ísland. Okkar tilgangur í mannauðsteyminu er að tengja fyrirtækið í gegnum Kjarna."

Markmiðið er að halda utan um upplýsingar á einum stað og miðla þeim áfram þangað sem þeirra er þörf. Þannig er Kjarni lykilkerfi í gagnaflæði fyrirtækisins. Þessi nálgun hefur meðal annars hjálpað fyrirtækinu að:

  • Halda betur utan um skipurit
  • Tryggja samræmi á milli kerfa
  • Bæta skýrslugerð
  • Einfalda aðgengi stjórnenda að upplýsingum
  • Draga úr tvískráningu og handvirkri vinnu

Sjálfvirkni sem sparar tíma og eykur yfirsýn

Hjá stóru fyrirtæki eins og Isavia þar sem öryggiskröfur eru strangar og ferlar margir er sjálfvirkni lykilatriði. Brynjar fór yfir þær fjölmörgu tengingar og sjálfvirknilausnir sem Isavia hefur byggt upp í kringum Kjarna líkt og:

  • Aðgangsstýringar (AD): Þegar starfsmaður er stofnaður eða flyst á milli deilda í Kjarna uppfærast réttindi hans í tölvukerfum og aðgansstýringum sjálfkrafa.
  • Bílastæðakerfi: Nýir starfsmenn fá sjálfkrafa réttindi á starfsmannabílastæði út frá ráðningardagsetningu í Kjarna.
  • Réttindi og áminningar: Kerfið vaktar gildistíma á öryggispössum og starfsréttindum (t.d. hjá flugumferðarstjórum) og sendir sjálfvirkar áminningar þegar endurnýjunar er þörf.
  • Innkaupaheimildir: Heimildir starfsfólks til innkaupa eru geymdar í Kjarna, sem sérsniðið innkaupa-app flettir svo upp í rauntíma.

Með þessu hefur fyrirtækið náð að draga úr handvirkri vinnu, bæta gagnaflæði og tryggja meira samræmi á milli kerfa.

Gervigreindin sem stafrænn aðstoðarmaður

Seinni hluti erindisins vakti sérstaka athygli meðal ráðstefnugesta en þar lýsti Brynjar því hvernig hann hefur nýtt gervigreind til að smíða eigin lausnir, þrátt fyrir að hafa ekki forritunarkunnáttu.

"Ég er enginn gervigreindarsnillingur," sagði hann og lýsti því hvernig hann hefði einfaldlega byrjað að prófa sig áfram. Með aðstoð gervigreindar hefur hann meðal annars smíðað:

  • Heimilisapp fyrir fjölskylduna sína
  • Yfirlitslausn fyrir árshátíðarskráningar
  • Verkefnastýringarkerfi fyrir teymið sitt
  • Lausnir sem tengjast nýráðningum og onboarding starfsfólks

Í mörgum tilfellum tengdi hann lausnirnar beint við Kjarna til að sækja upplýsingar sjálfvirkt. Þannig er hægt að draga úr handvirkri skráningu, bæta yfirsýn og fá rauntímaupplýsingar án þess að þurfa að kalla eftir þeim sérstaklega.

Allt er hægt, bara ef þú trúir á það

Stærsti lærdómurinn úr erindi Brynjars var þó ekki tæknin sjálf heldur hugarfarið.

Að hans mati snýst þróunin ekki endilega um að kunna að forrita eða vera sérfræðingur í gervigreind. Hún snýst um að vera forvitin, þora að prófa sig áfram og hugsa skapandi um hvernig hægt sé að leysa áskoranir.

Með gervigreind og öflugum lausnum eins og Kjarna geta mannauðsteymi orðið sífellt sjálfbjargari við að leysa verkefni, tengja gögn og þróa lausnir sem styðja betur við reksturinn.