Corus hefur á undanförnum árum byggt upp tvær lykillausnir fyrir íslenskan vinnumarkað, Kjarna mannauðs- og launakerfi og Moodup starfsánægjumælingar.
Á þessu ári hefur viðskiptavinum fjölgað jafnt og þétt og nú er Kjarna-teymið að innleiða Reykjavíkurborg, einn stærsta vinnustað landsins. Samhliða örum vexti hefur Corus nú ráðið Brynjar Má Brynjólfsson, sem hefur víðtæka reynslu úr mannauðsgeiranum, til starfa í hlutverk leiðtoga vaxtar og viðskiptaþróunar.
Brynjar Már hefur nýtt lausnir félagsins sem mannauðsstjóri og kom einnig að þróun Kjarna fyrir árum í Kjarna-teyminu. Hann segir samspil mannauðsmála og tækni vera drifkraftinn í nýja hlutverkinu.
„Ég hef mikla ástríðu fyrir mannauðsmálum en líka fyrir tækni og þeim tækifærum sem hún skapar. Hjá Corus fæ ég tækifæri til að sameina þetta tvennt. Það er því mikil tilhlökkun að fá tækifæri til að þróa lausnirnar áfram og leiða þá umbreytingu sem er að eiga sér stað í samspili fólks og tæknilausna.“
Brynjar Már Brynjólfsson, leiðtogi vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus
Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Corus, segir áhugann á lausnum félagsins sjaldan hafa verið meiri, ekki síst í ljósi þess hve hratt tæknin, þ.m.t. gervigreind, breytir væntingum vinnustaða til gagna og kerfa.
„Corus er á miklu vaxtarskeiði og áhugi á lausnum okkar er mjög mikill. Í heimi hraðra tækniframfara er fólk farið að gera meiri kröfur um að vinna með laun og mannauðsgögn í skilvirkum og sérhæfðum kerfum eins og Kjarna. Gott mannauðs- og launakerfi þarf bæði að styðja við stefnumótandi ákvarðanir og vera einfalt í notkun fyrir stjórnendur og mannauðsfólk.“
Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Corus
Halla Árnadóttir, leiðtogi vöruþróunar hjá Corus, segir spennandi tíma fram undan í þróun bæði Kjarna og Moodup, þar sem áherslan er á að gefa viðskiptavinum dýpri innsýn og betri verkfæri til ákvarðanatöku.
„Það eru spennandi tímar í vöruþróun hjá okkur um þessar mundir. Við erum að uppfæra okkar tæknilegu undirstöður, sem mun gera okkur enn betur kleift að þróa lausnir okkar hraðar og gefa viðskiptavinum meiri innsýn í gögnin.“
Halla Árnadóttir, leiðtogi vöruþróunar hjá Corus
Samhliða þessari þróun sjáum við vaxandi áhuga viðskiptavina á að mæla starfsánægju með reglulegum púlsmælingum sem gefa stjórnendum rauntímamynd af líðan starfsfólks, í stað þess að styðjast eingöngu við árlegar kannanir.
Markmið Corus er að stuðla að framförum mannauðsstjórnunar á Íslandi. Með samþættingu Kjarna og Moodup fá mannauðsteymi og stjórnendur heildstæða yfirsýn yfir mannauð, líðan og laun.
Sameiginleg sýn félagsins er skýr: Kjarni og Moodup eiga að vera raunverulegir bandamenn stjórnenda og starfsfólks í að byggja betri vinnustaði.