Greinar og fréttir

Corus er fyrir fólkið!

Written by Corus | 17.3.2026 16:00

Corus varð til í byrjun árs í kjölfar þeirrar ákvörðunar Origo og Skyggnis að stofna sér félag í kringum mannauðs- og launahugbúnaðinn Kjarna og sameina þá starfseiningu sem starfaði innan Origo við Moodup starfsánægjumælingar. Meginmarkmið Corus er að hjálpa fyrirtækjum að setja fólkið sitt í forgang. 

Corus sameinar tvær leiðandi lausnir í mannauðstækni á Íslandi og býr yfir breiðri sérþekkingu og skýrari fókus en nokkru sinni fyrr.

Hvernig hafa viðskiptavinir tekið í þessar breytingar?

"Við höfum fengið virkilega jákvæðar viðtökur frá viðskiptavinum og ekki síður starfsfólkinu sem er spennt að taka þátt í þróuninni með okkur," segir Dröfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Corus.

Kjarni hefur fylgt íslensku atvinnulífi í rúman áratug og verið veigamikill þáttur í daglegum rekstri margra íslenskra fyrirtækja og stofnana sem öflugt launa- og mannauðskerfi. Á sama tíma hefur Moodup sýnt fram á mikilvægi þess að fylgjast með líðan fólks jafnt og þétt. Reglulegar púlsmælingar hafa fest sig í sessi hjá tugum fyrirtækja og stofnana þær geta gefið betri mynd af raunveruleikanum en hefðbundnar árlegar kannanir.

Gögn sem hjálpartæki

"Við trúum því að tækni eigi ekki að vera markmið í sjálfu sér heldur tæki til að skilja betur fólkið á bak við gögnin og búa til vinnustaði þar sem því líður vel og það nær að vaxa og dafna," segir Halla Árnadóttir, vöru- og teymisstjóri Kjarna.

"Við heyrum reglulega frá viðskiptavinum okkar hversu ánægðir þeir eru að hafa öll gögn aðgengileg á einum stað. Þar að auki hafa margir mannauðs- og launaferlar verið sjálfvirknivæddir í kerfinu sem sparar tíma og eykur skilvirkni, ekki aðeins í mannauðs- og launadeildum heldur líka hjá stjórnendum og starfsfólki. Það er því óhætt að segja að kostirnir við eitt samþætt mannauðs- og launakerfi séu ótvíræðir.

Ef við skoðum Kjarna frá sjónarhorni stjórnenda þá hafa þeir aðgengilegar upplýsingar um fólkið sitt á einum stað á vef. Það gerir þeim kleift að hafa yfirsýn yfir til dæmis launakostnað, veikindi og orlofsstöðu - allt á einum stað," bætir Halla við.

"Með Kjarna geta stjórnendur til dæmis fylgst með þróun veikinda og séð kostnað þeirra í rauntíma. Kjarni gefur okkur yfirsýn yfir gögnin en fyrirtæki sem nýta Moodup í reglubundnar púlsmælingar hafa rætt um hversu þýðingarmikið þetta tól er til að vita hvernig starfsfólki líður. Ef því líður illa í vinnunni þá sýna niðurstöður það umsvifalaust," nefnir Dröfn.

"Þegar fjarvistir Kjarna eru speglaðar við niðurstöður úr púlsmælingum Moodup fara mynstrin að koma í ljós. Við getum til dæmis greint ef vinnuálag eykst eða starfsánægja dalar í tiltekinni deild áður en það fer að skila sér í auknum veikindum. Þarna fá stjórnendur tækifæri til að mæta sínu fólki með samtali eða stuðningi á réttum tíma. 

Mikilvægt er að nefna að markmiðið er ekki eftirlit með starfsfólki heldur að styðja stjórnendur í að vera til staðar. Með því að horfa á þessar tölur sem vísbendingar frekar en endanlega niðurstöðu geta fyrirtæki byggt upp forvarnarmenningu þar sem hlustað er á merkin áður en skaðinn er skeður," bætir hún við.

Ráðgjöf og umbætur

"Við höfum fundði þörf hjá viðskiptavinum okkar sem vilja aukna ráðgjöf til að vinna til dæmis að umbótum í kjölfarið á púlsmælingum og stjórnendamati sem Moodup býður upp á," er haft eftir Davíð Tómassyni sem stýrir sölu og vexti hjá Corus.

"Við erum í samstarfi við ráðgjafa sem eru að koma inn í slík verkefni með okkur. Markmiðið er ekki aðeins að veita fyrirtækjum aðgang að gögnum heldur einnig stuðning við að nýta þau. Við viljum ekki að viðskiptavinir okkar sitji einir eftir með mælaborð og skýrslur. Við vitum að gögn eru verðmæt, en þau skipta mestu máli þegar við vitum hvað á að gera við þau."

Corus byrjar árið með krafti

Verkefnin eru fjölbreytt hjá Corus og árið byrjaði sannarlega af miklum krafti. Í janúar voru 27 ný fyrirtæki innleidd í Kjarna mannauðs- og launakerfið og samanlagður fjöldi nýrra launþega um 2.200 talsins.

"Við erum með gríðarlega öflugt teymi sem býr yfir mikilli þekkingu í mannauðs- og launakerfum," segir Guðný Sævinsdóttir, þjónustustjóri Corus. "Af þessum 27 nýju fyrirtækjum tókst nokkrum að innleiða Kjarna á einum mánuði. Yfirleitt leggjum við upp með að innleiðing taki tvo mánuði en stundum ganga innleiðingarnar vonum framar og ef viðskiptavinurinn vill hlaupa hratt, þá stendur ekki á okkur," segir Guðný.