Corus tekur þátt í Sjávarútvegssýningunni þar sem við kynnum Fiska, kerfishluta innan Kjarna sem er sérstaklega hannaður fyrir vinnslu sjómannalauna.
Fiska heldur utan um helstu forsendur sem þarf við útreikning sjómannalauna, svo sem skip, skiptaprósentur, kaupliði og önnur skilyrði sem hafa áhrif á útreikning aflahlutar. Kerfið getur jafnframt sótt aflaverðmæti sjálfvirkt úr öðrum kerfum og skilað niðurstöðum beint inn í launavinnslu Kjarna.
Með Fiska geta útgerðir þannig unnið laun sjómanna og landvinnslu á einum stað, dregið úr handavinnu og aukið nákvæmni og rekjanleika í launavinnslunni.
Við hlökkum til að taka á móti gestum á Sjávarútvegssýningunni 22. til 24. september og sýna hvernig Fiska getur einfaldað launavinnslu hjá útgerðum.