---
title: Við kynnum CORUS til leiks!
description: Kjarni og Moodup sameinast í nýtt mannauðstæknifyrirtæki, Corus ehf., sem veitir íslenskum fyrirtækjum heildarlausnir í mannauðs- og launamálum.
---

[Greinar og fréttir ](https://www.corus.is/blogg)

# [Við kynnum CORUS til leiks!](https://www.corus.is/blogg/vid-kynnum-corus-til-leiks)

 Written by [Corus](https://www.corus.is/blogg/author/corus) | 29.12.2025 12:00

Nú hafa Kjarni, mannauðs- og launalausn frá Origo ehf. og Moodup starfsánægjumælingar sameinast í nýtt mannauðstæknifyrirtæki. Það félag hefur nú hlotið nafnið CORUS ehf. 

Tilgangur CORUS ehf. er að bjóða íslenskum fyrirtækjum og stofnunum traustan samstarfsaðila fyrir öll mannauðs- og launamál. 

Hið nýja félag, CORUS ehf., mun taka formlega til starfa þann 1. janúar 2026 og við það tímamark flyst öll þjónusta Kjarna mannauðs- og launalausna yfir í hið nýja félag. Þar undir falla allir samningar við núverandi viðskiptavini Kjarna. 

Kennitala Corus byggir á kennitölu Moodup. Því verður ekki breyting á samningsaðila eða þjónustuveitanda Moodup, nema sú breyting að Moodup er hér eftir hugbúnaðarlausn frá Corus.   

## Hvað þýðir þetta fyrir þig sem viðskiptavin?

- **Viðskiptavinir Kjarna:** Frá 1. janúar 2026 tekur Corus ehf við allri þjónustu og öllum samningum við núverandi viðskiptavini Kjarna.  

- **Viðskiptavinir Moodup**: Frá 1.janúar 2026 mun Moodup hugbúnaðurinn vera hluti af vöruframboði Corus ehf. Þar sem Corus byggir á kennitölu Moodup, þá verður engin frekari breyting hjá viðskiptavinum Moodup. 

- **Engin truflun** verður á núverandi viðskiptasamböndum. Sama starfsfólk mun áfram sinna sölu og þjónustu á þessum vörum, Kjarna og Moodup, nú undir merkjum Corus.  

- **Sérstaða í mannauðstækni**: Lausnir sem áður voru í boði hjá Origo og Moodup verða áfram fáanlegar, nú með enn skýrari fókus og sérhæfingu hjá Corus. 

- **Einn tengiliður fyrir mannauðstækni**: Með því að sameina Moodup og Kjarna og þjónustu hjá Corus verður auðveldara fyrir þig að nálgast allar tengdar lausnir og þjónustu á einum stað. 

- **Við erum til þjónustu reiðubúin! **Þjónustunetfang okkar er [hjalp@corus.is](mailto:hjalp@corus.is). Við erum með sama símanúmer 516 1700.  

- **Persónuvernd: **Okkur er umhugað um persónuvernd og gagnaöryggi. Á vef okkar má nálgast almenna skilmála Corus vegna þeirrar þjónustu sem veitt er ásamt skilmálum vegna vinnslu persónuupplýsinga þar sem unnið er með upplýsingar fyrir hönd viðskiptavina. 

Á vef Corus er hægt að nálgast upplýsingar um lausnir okkar – Kjarna, Moodup og Rúnu.  

 

[View full post](https://www.corus.is/blogg/vid-kynnum-corus-til-leiks)

```json
{
  "@context" : "http://schema.org",
  "@type" : "BlogPosting",
  "author" : {
    "@type" : "Person",
    "name" : "Corus"
  },
  "dateModified" : "2026-05-08T23:24:50.986Z",
  "datePublished" : "2025-12-29T12:00:00Z",
  "headline" : "Við kynnum CORUS til leiks!",
  "image" : {
    "@type" : "ImageObject",
    "height" : 418,
    "url" : "https://147293659.fs1.hubspotusercontent-eu1.net/hubfs/147293659/Backgrounds/Starfst%C3%A6kif%C3%A6ri-background.jpg",
    "width" : 960
  },
  "mainEntityOfPage" : "https://www.corus.is/blogg/vid-kynnum-corus-til-leiks",
  "publisher" : {
    "@type" : "Organization",
    "logo" : {
      "@type" : "ImageObject",
      "height" : 60,
      "url" : "/hs/hsstatic/content_shared_assets/static-1.4092/img/default-amp-logo.png",
      "width" : 60
    },
    "name" : "Greinar og fréttir"
  }
}
```