---
title: Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna
description: Mars útgáfa Kjarna er komin út, stútfull af nýjungum sem einfalda umsýslu og daglegt starf mannauðs- og launafólks.
---

[Greinar og fréttir ](https://www.corus.is/blogg)

# [Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna](https://www.corus.is/blogg/mars-utgafa-kjarna)

 Written by [Corus](https://www.corus.is/blogg/author/corus) | 24.3.2026 16:37

Mars útgáfa Kjarna er komin út, stútfull af nýjungum sem einfalda umsýslu og daglegt starf mannauðs- og launafólks. Stærstu fréttirnar að þessu sinni eru að frammistöðumat hefur nú alfarið verið fært yfir á Kjarnavefinn, ný vaktavirkni hefur litið dagsins ljós og við kynnum Fiska - nýjan og öflugan kerfishluta fyrir sjómannalaun.

Frammistöðumat alfarið á Kjarnavef

Sem hluti af vefvegferð Kjarna hefur umsýsla frammistöðumats nú verið flutt að fullu á Kjarnavefinn.

Þetta þýðir að nú er hægt að hanna eyðublöð og spurningar beint á vefnum á mun nútímalegri máta.

- Sveigjanleg spurningagerð: Nú er einfalt að setja upp eyðublöð á mismunandi tungumálum og skilgreina nákvæmlega hver á að svara hverri spurningu.
- Forskoðun: Við hönnun eyðublaða sérðu strax hvernig þau munu líta út fyrir bæði starfsfólk og framkvæmdaraðila.
- Aukið öryggi: Aðgangur að útfylltum eyðublöðum er nú takmarkaður við þátttakendur matsins. Aðrir notendur, t.d. mannauðsfólk, hefur áfram góða yfirsýn yfir framgang samtalanna til að tryggja að ferlar gangi eftir.

## Fiska - Sjómannalaun

Við kynnum með stolti Fiska, nýjan kerfishluta sem tryggir áreiðanlega og sjálfvirka vinnslu sjómannalauna. Í Fiska er haldið utan um allar lykilforsendur útreiknings, þar á meðal skip, skiptaprósentur, kaupliði og önnur skilyrði sem skipta máli við útreikning hlutar.

Fyrir útgerðir þýðir þetta að hægt er að halda utan um alla launavinnslu á einum stað, hvort sem fólk starfar á sjó eða landi.

- Sjálfvirkur útreikningur: Kerfið reiknar aflahlut út frá aflaverðmæti og öðrum forsendum og skilar niðurstöðum beint í launakerfi Kjarna til endanlegrar launavinnslu.
- Samþætting: Með vefþjónustum er hægt að sækja aflaverðmæti úr öðrum kerfum, sem lágmarkar handavinnu og eykur nákvæmni, auk þess að skila gögnum áfram í skýrslugerð og greiningu.

## Ný vaktavirkni og endurbætt Viðvera

Fyrstu útgáfu af vaktavirkni hefur verið bætt við Viðveru.

- Vaktarúllur: Nú er hægt að stofna vaktarúllur á Kjarnavef og tengja á starfsfólk þar sem vaktirnar nýta vinnutímaskilgreiningar úr kjarasamningum.
- Sjálfvirkir útreikningar: Kerfið parar saman skráðar vaktir við skráðan vinnutíma og reiknar út dagvinnu, álag og yfirvinnu miðað við þær forsendur.
- Betra yfirlit: Tímayfirlitið hefur verið endurbætt og sýnir nú vaktir og aðgreiningu á mismunandi álagsútreikningum á skýrari máta en áður.
- Orlofsflutningur: Ný aðgerð gerir kleift að flytja orlofstíma um orlofsáramót jafnvel þótt tímabil innihaldi ekki heilan dagatalsmánuð.
- Einfaldara orlofstékk: Nú er notuð ein og sama stillingin til að stýra orlofstékki fyrir Kjarnavef, Starfsmannavef og snjallforritið. Athugið að viðskiptavinir sem hafa slökkt á orlofstékki þurfa að uppfæra þessa nýju stillingu.
- Betra yfirlit: Viðbótarsvæðum hefur verið bætt við í yfirlitið  „Tímaútreikningur“ á Kjarnavef og listann  „Stimplarnir“ í client.
- Spjaldinu „Viðveruregla“ hefur verið bætt við starfsmannaferla.

## Ítarlegri gögn í launavinnslu og samþykktum

Við höfum bætt við virkni launasamþykktar á vefnum til að tryggja að stjórnendur hafi allar nauðsynlegar upplýsingar við höndina og yfirferð launa.

- Upplýsingamerki: Nú birtist lítið upplýsingamerki (i) aftan við nöfn starfsfólks og færslur í samþykktinni. Með því að smella á það má sjá skráningar úr grunnlaunaspjaldi, s.s. samning, launaflokk, þrep, aukaflokka og alla álagsflokka þar sem þeir eru notaðir.
- Dýpri greining: Þegar færslur í samþykkt eru „sprengdar út“ birtast upplýsingar um samning, launaflokk og þrep viðkomandi færslu. Þessar upplýsingar eru einnig aðgengilegar á færslum í samanburði.
- Sveigjanlegar launabreytingar: Hjá starfsfólki sem fylgir launatöflu kjarasamnings er nú hægt að velja nýja launatöflu beint ef starfsmaður er að færast á milli samninga. 

## Meiri sveigjanleiki í starfsmannaupplýsingum og ferlum

Við höfum aukið möguleika á að sérsníða hvaða upplýsingar eru sýnilegar og hvernig gögn eru skráð á Kjarnavefnum.

- Skilyrt birting: Nú er hægt að fela svæði í starfsmannaupplýsingum eða birta mismunandi svæði eftir aðgangshlutverkum. 
- Sjálfvalin gildi: Skilyrðingarvirknin sem áður var aðeins í client er nú komin á vefinn, sem gerir notendum kleift að skilgreina sjálfvalin gildi og hvaða svæði eiga að vera skilyrt við skráningu. 
- Betri stuðningur við erlenda starfsemi: Til að einfalda stofnun erlends starfsfólks úthlutar Kjarni nú sjálfkrafa „dummy*“ *kennitölu ef aðeins fæðingardagur er skráður. Einnig er nú hægt að leita að starfsfólki í ferlum eftir nafni, fæðingardegi eða númeri í stað þess að treysta eingöngu á kennitölu. 

## Aðrar spennandi viðbætur

- Power BI á vefnum: Hægt er að birta stöðluðu Power BI skýrslurnar beint á upphafssíðu Kjarnavefsins fyrir hraða og góða yfirsýn. 
- Mötuneytislausn: Nú er hægt að loka fyrir matarpantanir þá daga sem mötuneyti eru ekki opin, sem bætir upplifun starfsfólks og einfaldar skipulag. 
- Nýir listar: Listinn „*Tenging innan fyrirtækis“* hefur bæst við Kjarnavefinn sem hluti af áframhaldandi vinnu við að flytja alla lykilvirkni yfir á vefinn. 
- Sýn í samanburði: Nú er hægt að takmarka sýnina í samanburðinum niður á valið starfsfólk, sem er afar þægilegt þegar bera þarf saman tiltekna einstaklinga.
- Sérsniðnar ráðningar: Bætt hefur verið við stillingu fyrir sjálfgefna tegund ráðningar, þar sem þarfir viðskiptavina varðandi reynsluráðningar eru mismunandi. 

[View full post](https://www.corus.is/blogg/mars-utgafa-kjarna)

```json
{
  "@context" : "http://schema.org",
  "@type" : "BlogPosting",
  "author" : {
    "@type" : "Person",
    "name" : "Corus"
  },
  "dateModified" : "2026-03-25T09:19:43.345Z",
  "datePublished" : "2026-03-24T16:37:34Z",
  "headline" : "Snjallari ferlar, öflug vaktavirkni og ný lausn fyrir sjómannalaun í mars útgáfu Kjarna",
  "image" : {
    "@type" : "ImageObject",
    "height" : 1000,
    "url" : "https://147293659.fs1.hubspotusercontent-eu1.net/hubfs/147293659/MBL0357297%201-png.png",
    "width" : 1500
  },
  "mainEntityOfPage" : "https://www.corus.is/blogg/mars-utgafa-kjarna",
  "publisher" : {
    "@type" : "Organization",
    "logo" : {
      "@type" : "ImageObject",
      "height" : 60,
      "url" : "/hs/hsstatic/content_shared_assets/static-1.4092/img/default-amp-logo.png",
      "width" : 60
    },
    "name" : "Greinar og fréttir"
  }
}
```